Konunglega tækniháskólanum í Stokkhólmi í Svíþjóð (KTH) er ekki stætt á að banna 24 ára gömlum manni, sem í fyrra hlaut átta ára fangelsisdóm fyrir að leggja á ráðin um hryðjuverk, að halda áfram námi sínu í efnafræði við skólann.
Þetta er niðurstaða nýs dóms Stjórnsýsludómstólsins í Stokkhólmi.
Refsidóminn hlaut maðurinn í Lúxemborg í fyrra en réttarhöldin yfir honum fóru ekki fram fyrr þrátt fyrir að hann hefði verið handtekinn á heimili sínu snemma árs 2020 eftir ábendingu til lögreglu frá erlendri leyniþjónustu.
Hann var þá átján ára að aldri og bjó hjá föður sínum og konu hans. Við húsleit fann lögregla ætandi sýru og sprengiefni í eins konar efnafræðistofu sem maðurinn hafði sett upp í bílskúr heimilisins auk þess sem í tölvu hans fannst nákvæm áætlun undir heitinu „Fun time for Eurovision 2020“ um hvernig hann hugðist fremja hryðjuverk með blásýru á söngvakeppninni evrópsku í Rotterdam sem þó var aldrei haldin vegna heimsfaraldursins.
Dæmdur fyrir að brenna minkabú
Þegar réttarhöldin hófust var ákærði orðinn 23 ára og bjó í Svíþjóð þar sem hann nam efnafræði við KTH. Játaði ákærði að hafa lagt á ráðin um árásina á söngvakeppninni auk fleiri ráðagerða sem gögn fundust um í tölvu hans, svo sem að senda bréfsprengju til sænsks framleiðslufyrirtækis.
Áður hafði hann hlotið dóm fyrir að brenna minkabú í Blekinge árið 2019 þegar hann var félagi í hópi sem kenndi sig við vistfasisma (s. ekofascism) auk þess sem hann tilheyrði þá alþjóðlegu nýnasistasamtökunum The Base.
Komst dómstóllinn í Lúxemborg að þeirri niðurstöðu að dæma efnafræðinemann í átta ára fangelsi, þar af sex ár skilorðsbundin og skilyrði að hann sæti á þeim tíma aföfgavæðingarnámskeið (s. avradikaliseringsprogram) og væri námskeiðinu ekki lokið innan fimm ára frá dómsuppsögu yrði skilorðshluti dómsins að afplánun.
„Ég hef ekkert með þessa haturshópa að gera“
Þegar sænska ríkisútvarpið SVT ræddi síðar við dæmda skriflega kvaðst hann með öllu orðinn frábitinn þeirri hugmyndafræði sem hann áður hefði aðhyllst. „Ég vil leggja þetta að baki mér. Ég hef ekkert með þessa haturshópa að gera lengur og þeirra viðhorf,“ skrifaði hann til SVT.
Í kjölfar dómsins ákvað stjórn KTH að vísa manninum frá námi í efnafræði. Þessu hafnaði brottrekstrarnefnd háskólastigsins í Svíþjóð en KTH vildi ekki una niðurstöðunni og fór málið að lokum fyrir stjórnsýsludómstólinn sem felldi brottvísun skólans úr gildi með dómi og rökstuddi með því að sú hætta væri ekki lengur fyrir hendi að nemandinn kæmi til með að skaða fólk eða fyrirtæki meðan á náminu stæði eins og stjórnendur KTH höfðu óttast.