Kvenmannsnafnið Yrma hlaut ekki náð mannanafnanefndar. Nefndin hefur birt úrskurði sem voru kveðnir upp 18. nóvember. Allar nafnbeiðnir voru samþykktar að undanskilinni nafninu Yrmu.
Í rökum þeirra segir að rithátturinn Yrma sé ekki í samræmi við íslenskar ritreglur. Stafurinn y sé ekki ritaður í íslenskum orðum nema þar sem hann styðst við uppruna en það eigi ekki við í þessu tilviki. Þá hafi ritháttur nafnsins heldur ekki unnið sér hefð í íslensku máli.
Kvenkyns nöfnin Brimbrá, Hrafnhljóð, Valörk, Antonína, Gaia og Mána voru öll samþykkt.
Þá féllst nefndin á föðurkenningarnar Íansdóttir og Mikaelsson auk móðurkenningarinnar Katarínubur.