„Lygaáróðurs­her­ferð af hálfu pólitískra and­stæðinga“ - Vísir
⚠️ Eldri en 6 mánuðir

„Lygaáróðurs­her­ferð af hálfu pólitískra and­stæðinga“ - Vísir

„Lygaáróðurs­her­ferð af hálfu pólitískra and­stæðinga“ - Vísir
Til marks um stemninguna er færsla Baldurs Helgasonar listamanns, sem uppskar nokkurt lof, meðal annars þingmanns Samfylkingar, þar sem hann hvatti menn til að „confronta“ Snorra í fermingarveislum vegna „viðbjóðslegs“ málflutnings: „ Og ef hann skilur það ekki, þá megið þið bróka hann, hann skilur nefnilega ofbeldi.“ Þetta er bara eitt dæmi af mýmörgum.
Snorri klórar sér í kollinum vegna ýmiss þess sem komið hefur fram en er reyndar furðu rólegur að teknu tilliti til þeirrar holskeflu reiði og óhróðurs sem yfir hann hefur gengið undanfarna daga.„Á sinn hátt má sýna því skilning að einhverjir átti sig ekki við fyrstu sýn á tilgangi þessarar gagnrýni, ef menn hafa til dæmis ekki skynjað eða haft veður af öðru en að regnboga-transfáni sé bara hlutlaust og algilt tákn umburðarlyndis í okkar samfélagi. Ekki síst þegar skellur á sú lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga sem hefur tröllriðið þessari umræðu síðustu daga,“ segir Snorri í samtali við Vísi.

Woke-pólitík og DEI-pólitík

Snorri segir að reynt hafi verið að mála upp þá afbökuðu mynd að eðlileg umræða um skyndilegt en verulegt umfang þessara fánaskreytinga í grunn- og leikskólum útiloki á einhvern hátt hitt, sem er sjálfsögð virðing manna gagnvart náunganum, óháð kynhneigð eða öðrum þáttum. Þarna sé verið að blanda tvennu óskyldu saman á fremur óskammfeilinn hátt.
„Ef út í það er farið virðast það reyndar ekki síst vera samkynhneigðir sem hafa tekið undir gagnrýni á fánana, sem gengisfellir væntanlega alveg fullyrðingar fólks um að þeir séu bara umburðarlyndisvottur eða óumdeilt sameiningartákn þess hóps.“Snorri segir að þetta viti auðvitað þessir gagnrýnendur sem hafa farið mikinn.„En þau beita þessum brellum, jafnvel málsmetandi fólk sem vill láta taka sig alvarlega, eingöngu til að komast hjá kjarna máls, sem er vaxandi pólitísk hleðsla þessara fána – eins og einn orðaði það, „róttæk pólitísk réttsýni, vinstripólitík, Woke-pólitík og DEI-pólitík.“

Langt í frá óumdeildur fáni

Ásgeir Ingvarsson blaðamaður er meðal þeirra sem renna stoðum undir þessi orð Snorra en hann ritaði á Facebook í athugasemd:„Verandi samkynhneigður með gullstjörnu, þá þykir mér regnbogafáninn einmitt hafa verið tekinn í gíslingu af fólki með pólitískan málstað og heimssýn sem ég á enga samleið með. Ég gat samsamað mig regnbogafánanum fyrir 25 árum, en í dag þykir mér fáninn fela í sér skilaboð um stuðning við róttæka pólitíska réttsýni, vinstripólitík, Woke-pólitík og DEI-pólitík.“
Það kemur Snorra stórkostlega á óvart að spurningar þær sem hann viðraði teljist sæta slíkum tíðindum.vísir/Anton Brink
Ásgeir telur að þetta sé pólitík sem ætti að halda utan skólastofunnar:„Þeim sem liggur mest á að veifa fánum fyrir hinn eða þennan málstað virðist mér síðan iðulega fyrst og fremst gera það til að auglýsa hvað þeir eru sjálfir agalega dyggðugir og réttsýnir. Stundum held ég að væri einfaldast að hefja sölu á T-bolum sem væru merktir „Athugið að ég er siðferðislega yfir meðallagi“, og þannig spara fólki ómakið við að skreyta sig með dyggðafánum líðandi stundar.“Og þá hefur færsla Hallgeirs Jónssonar vakið verulega athygli og fengið rúm þrettán hundruð „læk-merki“. Hallgeir segist samkynhneigður, að honum hafi lengi vel þótt vænt um fánann en hreyfingin á bak við hann hafi breyst.
„Í mínum huga þá stendur regnbogafáninn núna fyrst og fremst fyrir ofríki. Hjarðhegðun landsmanna síðustu tvo dagana þar sem fyrirtæki, stofnanir, pólitíkusar og frægt fólk hafa keppst við að æla regnbogalitum yfir samfélagsmiðla er ágætis staðfesting á því,“ skrifar Hallgeir meðal annars.

Að fólk gæti að ábyrgð sinni

Snorri segir aukinheldur að vitaskuld sé mönnum í frjálsu samfélagi frjálst að beita ýmsum táknum í ýmsum tilgangi í sínu daglega lífi.„En mínar athugasemdir lutu að áliti ráðherrans á slíku í opinberum skólum og leikskólum. Það kemur mér á óvart að slíkar spurningar teljist sæta tíðindum frá mér þar sem ég hef áður lýst opinberlega áhyggjum mínum af því hvort menn séu að gæta nægilega vel að ábyrgð sinni innan menntakerfis þegar verið er að kynna nýstárlegar og síbreytilegar hugmyndir, til dæmis Samtakanna 78, um trans- og kynsegin mál fyrir börnum sem eru enn að læra að greina á milli ímyndunar og veruleika. 
Snorri segir iðulega snúið rækilega út úr öllu sem sagt var eða jafnvel aldrei sagt og svo er lagt hart að mönnum að bregðast við umræðunni – eins og hún líti út á hvolfi.vísir/vilhelm
Að hluta til vísar fáninn til slíkra hugmynda. Að hvetja til ábyrgrar nálgunar í sátt við foreldra á þessu sviði fer vel saman við að sýna fólki að öðru leyti virðingu óháð því hvernig það lifir sínu lífi.“Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra er ein þeirra sem ekki dregur af sér og spyr hvar forgangsmál sé að banna regnbogafána í skjólum? Jú, Rússlandi Pútíns, Ungverjalandi Orbáns, í Bandaríkjum Trumps og nú í draumaheimi Snorra Mássonar.
„Ekki halda að Snorri Másson viti ekki hvað hann er að gera. Fyrst var það trans fólk sem var fyrir fyrirmyndarríkinu hans. Núna regnbogafánar sem stuðla að því að öllum börnum, alls konar börnum, líði vel í skólunum sínum, finnist þau tilheyra samfélaginu. Því það er ekki þannig sem Snorri vill hafa fyrirmyndarríkið sitt.Ekki er það félegt, erindi Miðflokksins í íslenska pólitík.”Þessari færslu hefur verið dreift duglega um Facebook.

Ofsafengin viðbrögð við einföldum spurningum

Snorri segir að eins og upphaflega gagnrýni hans hafi fjallað um þá fari sú tilfinning vaxandi meðal fólks að umræddur fáni feli í sér kröfu um hugmyndafræðilega undirgefni.„Þetta er gagnvart fjölda atriða, þótt hann geti vel haft aðra þýðingu fyrir öðrum. Það sannast best á ofsafengnum viðbrögðunum við því þegar spurt er einfaldra spurninga um fánann.“Eins og Vísir hefur greint frá hefur biskup Íslands fordæmt orð Snorra og fjöldi klerka.
 Ólafur Jón Magnússon, prestur í Svíþjóð, tók hins vegar upp öndverðan pól:„Í vikunni sem leið snerti Snorri Másson tótemið, þ.e. vanhelgaði regnbogafánann, fánann sem ekki er leyfilegt að efast um. Nú er keppst við að koma fánanum til varnar, eins og staða hans væri viðkvæm. Merking fánans er nú af mörgum sögð vera: „Öll eru velkomin“ en réttara væri að skrifa „Öll eru velkomin nema auðvitað þið sem samþykkið ekki okkar lífsskilning“. Regnbogafáninn er, öfugt við þjóðfánann, fáni sérstaks lífsskilnings. Hann er ekki sameiningartákn þjóðarinnar. Þegar fánanum er flaggað úti um allt af hinu opinbera á opinberum stöðum er hann áminning til allra um hvaða lífsskilningur hefur völdin í samfélaginu, áminning um hvaða lífsskilning er í flestum tilvikum nauðsynlegt að aðhyllast til að njóta starfsöryggis og komast til metorða.“

Fáninn tákn undirgefni

Séra Ólafur Jón segir að ef regnbogafánanum er ekki flaggað eða hann hafður sýnilegur sé viðkomandi manneskja, stofnun eða fyrirtæki aldrei óhult fyrir ásökunum um hollustubrest við hinn ríkjandi lífsskilning.
Séra Ólafur Jón Magnússon prestur í Svíþjóð kemur með talsvert annað sjónarhorn en það sem einkennt hefur kirkjunnar menn hér á Íslandi.Facebook
„Fáninn er fáni inngildingar ákveðinna hópa og útilokunar annarra, sumum fáni frelsis og öðrum fáni þöggunar og þvingunar. Regnbogafáninn er fáni margra nýrra róttækra viðhorfa til kynja og kynlífs. Þetta er ekki fáni samkynhneigðra sem vilja lifa í hjónabandi á hefðbundinn hátt nema að litlu leyti, heldur er þetta fáni lífsskilnings sem gerir t.d. pólísamböndum og BDSM hátt undir höfði, atferli sem nýtur langt í frá almennrar viðurkenningar.“
Séra Ólafur segir marga veifa fánanum til að sýna umburðarlyndi sitt en lífsskilningurinn sem fáninn stendur fyrir er síður en svo umburðarlyndur, hann krefst hollustu og umber ekki umræðu og frjálsa hugsun. „Umburðarlyndi er af hinu góða og lífsnauðsynlegt mannlegu samfélagi en þessi róttæki lífsskilningur sættir sig ekki við umburðarlyndi heldur aðeins við undirgefni.“

Útúrsnúningar notaðir í pólitískan spuna

Senn líður að sveitarstjórnarkosningum og að sögn Snorra bjóða þau í Miðflokknum fram glæsilega lista vítt og breitt um landið. Eftir að umræða um vangaveltur Snorra í þinginu komst í hámæli á samfélagsmiðlum vakti athygli að sum framboð Miðflokksins á landsbyggðinni sáu sig knúin til að senda frá sér orðsendingu eða yfirlýsingu á samfélagsmiðlum sem mátti skilja sem áréttingu á stuðningi við svonefndan fjölbreytileika. Þetta var allt yfir í harða gagnrýni á varaformanninn sem barst úr Skagafirði?
„Fyrirséð er að svona spuni sé notaður í pólitískum tilgangi til að beita menn þrýstingi. Það er leitt að fylgjast með slíkum árásum á frambjóðendur flokksins. Þá er iðulega snúið rækilega út úr öllu sem sagt var eða jafnvel aldrei sagt og svo er lagt hart að mönnum að bregðast við umræðunni – eins og hún lítur út á hvolfi.“Að sögn Snorra skila slíkar æfingar þeim í Miðflokknum líklega litlu.„Enda vitum við þegar vel fyrir hvað við stöndum. Stefna Miðflokksins er skýr og ekki síður er það hlutverk og sérstaða Miðflokksins að við veigrum okkur ekki við að taka stór og umdeild samfélagsmál til hreinskiptinnar umræðu – jafnvel þótt það baki okkur mótmæli úr fyrirsjáanlegri átt,“ segir Snorri.
#andstæðinga #hálfu #lygaáróðursherferð #pólitískra #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262872547d/-lygaarodursherferd-af-halfu-politiskra-andstaedinga-

📰 Aðrar fréttir

Íslendingar lýsa því hversu mikið þeir ná að leggja til hliðar í hverjum mánuði – „Bara góð ef ég kem út á núlli þessa dagana“
📅 24.10.2026 👁️ 1
Íslendingar lýsa því hversu mikið þeir ná að leggja til hliðar í hverjum mánuði – „Bara góð ef ég kem út á núlli þessa dagana“
Í dýrtíð eins og nú er er ekki sjálfsagt að geta lagt fyrir í hverjum mánuði. Annað hvort inn á sparireikning eða borgað inn á lán. Í umræðum á samfél...
Kennari skildi bekk sex ára barna einan eftir og fór á fyllerí – Læsti sig inni á klósettinu
📅 24.10.2026 👁️ 1
Kennari skildi bekk sex ára barna einan eftir og fór á fyllerí – Læsti sig inni á klósettinu
Katharine Viviano, 50 ára grunnskólakennari í Pennsylvaníufylki í Bandaríkjunum, hefur verið ákærð fyrir ölvun á almannafæri eftir undarlegt atvik í h...
Segir viðmót starfsmanns hafa breyst þegar hún sagðist vera gyðingur
📅 24.10.2026 👁️ 1
Segir viðmót starfsmanns hafa breyst þegar hún sagðist vera gyðingur
Ísraelsk-bandaríski rithöfundurinn Shoshanna Keats Jaskoll segir viðmót starfsmanns í öryggisleit á flugvellinum hafa breyst þegar hún sagðist vera gy...
Segir skorta rök fyrir því að lögregluembættin verði þrjú
📅 24.10.2026 👁️ 1
Segir skorta rök fyrir því að lögregluembættin verði þrjú
Yfirlögregluþjónar og starfsmenn lögreglu á Norðurlandi vestra og Vestfjörðum lýsa áhyggjum af fyrirhugaðri fækkun lögregluembætta úr níu í þrjú. Alls...
Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 1
Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni - Vísir
Keppnin var á vegum Krónunnar og var metþátttaka í ár. Edda sem bar sigur úr býtum var í öðru sæti fyrir tveimur árum og hefur því ákveðna reynslu á b...
Hefur ekki átt í sambandi við föður sinn til að vernda börnin
📅 24.10.2026 👁️ 1
Hefur ekki átt í sambandi við föður sinn til að vernda börnin
Meghan Markle hefur ekki leyft föður sínum að eiga í sambandi við börnin sín vegna ásakana á hendur honum. Fréttir bárust af því í gær að myndefni sem...
Sjö þúsund krónur séu ekki nóg - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Sjö þúsund krónur séu ekki nóg - Vísir
„Innanlandsflugið er lífæð landsbyggðar og tryggir aðgengi að nauðsynlegri þjónustu við fólk. Flugið er öryggismál og jafnréttismál til að jafna aðstö...
Þrír menn segjast hafa selt Lindsey Graham vændi – Einn var 17 ára
📅 24.10.2026 👁️ 2
Þrír menn segjast hafa selt Lindsey Graham vændi – Einn var 17 ára
Í myndbandi sem birt var af hópnum The Young Turks segir að þingmaðurinn Lindsey Graham hafi keypt vændi af karlmönnum. Graham lést skyndilega í sumar...
Yfir hundrað hand­teknir í mót­mælunum - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Yfir hundrað hand­teknir í mót­mælunum - Vísir
Mótmælaaldan sem hefur farið vaxandi í Frakklandi á síðustu vikum náði hámarki um síðustu helgi. Fjöldi fólks var handtekinn og voru gerðar miklar ske...
Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins - Vísir
Þann 16. apríl síðastliðinn spurði Njáll Trausti Friðbersson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd, Eyjólf Ármannsson samgön...
Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Refhverf sléttubönd
📅 24.10.2026 👁️ 3
Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Refhverf sléttubönd
Talsvert er rætt um gervigreind þessa dagana. Margir þeirra sem vinna með höfðinu óttast að þeir verði úreltir og ónothæfir áður en langt um líður. Vi...
Þetta er undar­legt…: QWER­TY-stafa­ruglið á símum og lykla­borðum - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
Þetta er undar­legt…: QWER­TY-stafa­ruglið á símum og lykla­borðum - Vísir
Frekar undarlegt er það ekki? Vinsælasta skýringin er sú að í upphafi ritvélarinnar festust takkarnir ef pikkað var of hratt. Þannig að uppfinningamað...
Salvör krefur stjórnvöld um svör – „Að baki þessu máli er barn sem lést og fjölskylda sem hefur orðið fyrir óbætanlegum missi“
📅 24.10.2026 👁️ 3
Salvör krefur stjórnvöld um svör – „Að baki þessu máli er barn sem lést og fjölskylda sem hefur orðið fyrir óbætanlegum missi“
Salvör Nordal, umboðsmaður barna, segir að stjórnvöld verði að gera grein fyrir úrbótum varðandi neyðarvistun barna. Tvö ár eru síðan drengur í neyðar...
Smáhestar flúðu úr verslunar­mið­stöð - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
Smáhestar flúðu úr verslunar­mið­stöð - Vísir
Dýrin komust raunar ekki langt. Lögregla náði að handsama hestana þegar þeir stoppuðu til að bíta gras um kílómetra frá verslunarmiðstöðinni og voru þ...
Geta notað drónana til fulls á ný - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
Geta notað drónana til fulls á ný - Vísir
Aðfaranótt 14. október tóku úkraínskir hermenn eftir því að takmarkanir virtust hafa verið settar á notkun þeirra á Starshield-kerfinu sem er sérstaku...
Sigmundur Ernir skrifar: Það krefst úthalds til að auðga samfélagið
📅 24.10.2026 👁️ 4
Sigmundur Ernir skrifar: Það krefst úthalds til að auðga samfélagið
Mynd Mannréttindabarátta hefur mestu varðað um bætta ásýnd samfé
Lilja Rafney ekki ánægð með breytingu flokksbróður síns – „Þetta er ekki boðlegt“
📅 24.10.2026 👁️ 3
Lilja Rafney ekki ánægð með breytingu flokksbróður síns – „Þetta er ekki boðlegt“
Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingkona Flokks fólksins, er ekki ánægð með fyrirhugaðar breytingar á hinni svokölluðu Loftbrú. Flokksbróðir hennar Eyjólfu...
Leggjast gegn sam­einingu lögregluembætta - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Leggjast gegn sam­einingu lögregluembætta - Vísir
Umsögnin beinist að frumvarpsdrögum Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um skipulagsbreytingar hjá lögreglu. Frumvarpið leggur til að...
Paramedics save holidaymakers life after he had a heart attack on a beach in Lanzarote
📅 24.10.2026 👁️ 3
Paramedics save holidaymakers life after he had a heart attack on a beach in Lanzarote
An elderly man was resuscitated and taken to hospital after suffering a cardiac arrest at La Garita beach in Arrieta, located in the north of Lanzarot...
Katrín í Lýsi fjárfestir í einkareknum spítala
📅 24.10.2026 👁️ 2
Katrín í Lýsi fjárfestir í einkareknum spítala
Katrín í Lýsi fjárfestir í einkareknum spítala Litli spít­al­inn verður opn­aður í hús­næði í eigu stofn­anda Samherja. Nýja einka­rekna sjúkra­húsið ...
Hyggjast mótmæla breytingum á Loftbrú: „Við ætlum ekki að sætta okkur við þetta“
📅 24.10.2026 👁️ 2
Hyggjast mótmæla breytingum á Loftbrú: „Við ætlum ekki að sætta okkur við þetta“
Innviðaráðherra, tilkynnti í gær breytingar á fyrirkomulagi Loftbrúar sem taka gildi frá og með áramótum. Formaður Sambands sveitarfélaga á Austurland...
Investor Political Due Diligence in Europe: Which firms should you speak to?
📅 24.10.2026 👁️ 2
Investor Political Due Diligence in Europe: Which firms should you speak to?
A European investment target may have strong financial results and still depend on relationships that do not appear in its accounts. Political connect...
Skrif­borð Megasar eins og hjá skurð­lækni - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Skrif­borð Megasar eins og hjá skurð­lækni - Vísir
Í viðtalinu fer Tolli á kostum, hann fer yfir víðan völl og stiklar á stóru varðandi sinn litríka feril. Hann hætti öllum afskiptum af tónlist eftir a...
Pawel Bartoszek: Við erum ekki að innleiða bókun 35 fyrir Brussel – við erum að innleiða hana fyrir Íslendinga
📅 24.10.2026 👁️ 4
Pawel Bartoszek: Við erum ekki að innleiða bókun 35 fyrir Brussel – við erum að innleiða hana fyrir Íslendinga
Þegar við skrifuðum undir EES-samninginn skuldbundum við okkur til að lögfesta forgang innleiddra laga og regla sem leiddu af honum ef þörf væri á. Hæ...
Sigríður Hagalín með frumlega hugmynd fyrir borgarstjórn – „Byggingin er bæði falleg og praktísk“
📅 24.10.2026 👁️ 4
Sigríður Hagalín með frumlega hugmynd fyrir borgarstjórn – „Byggingin er bæði falleg og praktísk“
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, fréttakona og rithöfundur, leggur til að borgarstjórn Reykjavíkur sameini tvö mál sem henni eru hjartfólgin, það er bók...
Starfsmenn lögreglunnar á Norðurlandi vestra leggjast gegn sameiningu embætta
📅 24.10.2026 👁️ 4
Starfsmenn lögreglunnar á Norðurlandi vestra leggjast gegn sameiningu embætta
Starfsmenn Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra hafa skilað inn umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögreglulögum. Þar leggjast þeir gegn þei...
Lýsa þungum áhyggjum af vanfjármögnun á sjúkraflutningum á Suðurnesjum
📅 24.10.2026 👁️ 4
Lýsa þungum áhyggjum af vanfjármögnun á sjúkraflutningum á Suðurnesjum
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar lýsir þungum áhyggjum af sjúkraflutningum á Suðurnesjum. Þetta kemur fram í sameiginlegri bókun bæjarstjórnarfulltrúa á fun...
„Ég er bara svo­lítið sár“ - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
„Ég er bara svo­lítið sár“ - Vísir
Loftbrúarverkefnið var sett á fót fyrir sex árum til þess að bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni að þjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Hingað til hefur fól...
Hafi fengið bréf um á­sakanirnar en deildu því ekki með fleirum - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Hafi fengið bréf um á­sakanirnar en deildu því ekki með fleirum - Vísir
Greint var frá því í gær að Thomas Markle eldri hefði verið sakaður um vörslu barnaníðsefnis af syni sínum, Thomas Markle yngri, sem er hálfbróðir Meg...
Minkarækt Dana mun heyra sögunni til - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Minkarækt Dana mun heyra sögunni til - Vísir
Fyrri ríkisstjórn Mette Fredriksen forsætisráðherra Danmerkur greiddi atkvæði gegn reglugerð ESB árið 2025 og ákvað í kjölfarið að sækja um undanþágu ...
Voru loftslagsverkföll ungs fólks bara góðærishreyfing?
📅 24.10.2026 👁️ 4
Voru loftslagsverkföll ungs fólks bara góðærishreyfing?
„Ef aðrar hreyfingar eru öflugar þá hafa hinar hreyfingarnar lítið pláss og það heyrist lítið í þeim. Í samtímanum eru bara önnur málefni sem taka mik...
Hversu vel fylgdist þú með fréttum vikunnar? Taktu fréttakvissið - RÚV.is
📅 24.10.2026 👁️ 4
Hversu vel fylgdist þú með fréttum vikunnar? Taktu fréttakvissið - RÚV.is
Hér eru tíu spurningar úr fréttum vikunnar. Veistu hvað nýtt fangelsi á að heita, hvaða bíómynd á að setja á svið í Borgarleikhúsinu og hvaða land ban...
Vikulokin: Mótmæli í Evrópu, bókasöfn, menntamál og tíðindaleysi á þingi
📅 24.10.2026 👁️ 4
Vikulokin: Mótmæli í Evrópu, bókasöfn, menntamál og tíðindaleysi á þingi
Mótmælin í Evrópu, PHP-málið, hugmyndir um breytingar á rekstri bókasafna og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, menntamál og tíðindaleysi á þingi er meða...
Met Police confirms it received 2019 letter with "number of claims" about Meghan's father
📅 24.10.2026 👁️ 3
Met Police confirms it received 2019 letter with "number of claims" about Meghan's father
The Met said it passed information to the duchess but did not share it with other law enforcement agencies.
„Lands­byggðin brjáluð“ og draugar í Laugar­dal - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
„Lands­byggðin brjáluð“ og draugar í Laugar­dal - Vísir
Þá verður rætt við þingmann stjórnarminnihlutans sem segir landsbyggðina brjálaða vegna málsins. Eyjólfur Ármannsson samgönguráðherra hafi lofað samrá...
Séð og heyrt á flóknum mótmælum í Frakklandi
📅 24.10.2026 👁️ 4
Séð og heyrt á flóknum mótmælum í Frakklandi
Séð og heyrt á flóknum mótmælum í Frakklandi Við­bún­aður víða um Frakk­land í dag. Hvað knýr and­stöð­una áfram? Hvernig hefur hún breyst? Rætt við f...
700 mótmæli skipulögð í Frakklandi í dag
📅 24.10.2026 👁️ 3
700 mótmæli skipulögð í Frakklandi í dag
Fjölmenn mótmæli eru fyrirhuguð í að minnsta kosti átta borgum á Ítalíu, á Spáni, í Portúgal, Albaníu og Austurríki.Yfirvöld í Frakklandi hafa hert ör...
Kim fór til Kína - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
Kim fór til Kína - Vísir
Kim fór um borð í lestina í Pjongjang, höfuðborg Norður-Kóreu, sem fór yfir nýju brúna sem liggur yfir Yalu-fljótið og endaði í kínversku borginni Dan...
Íslenska Trump-hatursæðið
📅 24.10.2026 👁️ 3
Íslenska Trump-hatursæðið
Íris Erlingsdóttir skrifar: Sérkennileg árátta hefur gripið um sig í íslenskri þjóðfélagsumræðu – að svara pólitískum skoðunum með skítkasti í stað ra...
Between quick wins and big dreams lies Burnham's biggest test, starting with the Budget
📅 24.10.2026 👁️ 4
Between quick wins and big dreams lies Burnham's biggest test, starting with the Budget
The prime minister might be dreaming of gold medals in 2040, but he must first navigate the difficult years in between, writes Laura Kuenssberg.
Orðið á götunni: Sleifarlag Sjálfstæðismanna í sveitarstjórnum – Seltjarnarnes á leið í gjörgæslu, Þór settur af? Bullandi tap í Hafnarfirði
📅 24.10.2026 👁️ 3
Orðið á götunni: Sleifarlag Sjálfstæðismanna í sveitarstjórnum – Seltjarnarnes á leið í gjörgæslu, Þór settur af? Bullandi tap í Hafnarfirði
Hrikaleg staða fjármála Seltjarnarnesbæjar er enn á ný komin á dagskrá eftir að sex mánaða uppgjör var birt nýlega þar sem halli á A-hluta bæjarins va...
Northern Olympics plan to get £7m in John Healey's first Budget
📅 24.10.2026 👁️ 4
Northern Olympics plan to get £7m in John Healey's first Budget
The full feasibility study will look in detail at how hosting the Games in northern England could work.
Explore Gran Canaria’s British heritage on a new free guided walk
📅 24.10.2026 👁️ 4
Explore Gran Canaria’s British heritage on a new free guided walk
Residents and holidaymakers can discover a different side of Las Palmas next week, with a bilingual guided walk exploring the city’s British connectio...
300 dumped mattresses cleared from Costa Calma streets
📅 24.10.2026 👁️ 4
300 dumped mattresses cleared from Costa Calma streets
Clean-up crews have removed 300 mattresses and 22 tonnes of bulky waste from Costa Calma this month, prompting an appeal for residents and businesses ...
Gianni Infantino: Fifa president says he is backed by 'vast majority' in world football
📅 24.10.2026 👁️ 4
Gianni Infantino: Fifa president says he is backed by 'vast majority' in world football
Fifa president Gianni Infantino laughs off questions about whether he considered resigning over the World Cup sell-off debacle.
Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað - Vísir
Um sjötíu þúsund lögreglumenn verða við störf í Frakklandi á þar sem yfirvöld reyna að stemma stigu við mótmælaöldu sem hefur farið vaxandi á síðustu ...
Augljós og marktæk aukning á sölu insúlínsprauta og nála
📅 24.10.2026 👁️ 4
Augljós og marktæk aukning á sölu insúlínsprauta og nála
Eftirspurn eftir insúlínsprautum og nálum heldur áfram áfram að aukast. Hægt er að nota sprauturnar til að sprauta peptíðum í líkamann, en borið hefur...
Ætlar að koma palestínskum yfirvöldum „á óvart“
📅 24.10.2026 👁️ 4
Ætlar að koma palestínskum yfirvöldum „á óvart“
Ætlar að koma palestínskum yfirvöldum „á óvart“ Eftir árás tveggja palest­ínskra manna á ísra­elska her­menn á Vest­ur­bakk­anum boðar Benjamín Net­an...
Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
📅 24.10.2026 👁️ 3
Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi Mynd: Brynhildur Jensdóttir HMS hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Unu um innköllun á ...
Fimmtán ára drengur handtekinn eftir Facebook-færslur um borgarfulltrúa
📅 24.10.2026 👁️ 4
Fimmtán ára drengur handtekinn eftir Facebook-færslur um borgarfulltrúa
Lögreglan í West Midlands á Englandi handtók 15 ára dreng á heimili hans í Walsall 3. ágúst eftir að leiðtogi Íhaldsmanna í borgarstjórn Wolverhampton...