Framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Kópavogs segir að næstu misserin verði eldvarnir við Guðmundarlund bættar. Lundurinn slapp naumlega í miklum gróðureldum í febrúar og þar sem áður var mosi sprettur nú upp lúpína.
Tugir hektara brunnu í gróðureldunum sem kviknuðu ofan við Vatnsvík við Elliðavatn og breiddust hratt út og alla leið að Guðmundarlundi í um kílómetra fjarlægð.
„Við vorum það lánsöm þegar eldurinn kom að Guðmundarlundi, eldurinn sleikti svona alveg jaðarinn á Guðmundarlundi, en hann slapp. En svo aftur á móti, hinum megin, fyrir austan þar sem eldsupptökin voru nálægt Elliðarvatni, þar eru dálitlar skemmdir í gömlum sumarbústaðalöndum,“ segir Kristinn H. Þorsteinsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Kópavogs.
Lítill göngustígur kom í veg fyrir að eldurinn næði að brenna lundinn. Kristinn segir að nú standi til að leggja fleiri stíga til að koma í veg fyrir óhefta útbreiðslu gróðurelda.
„Það brann hjá okkur 2021 þá fórum við af stað með eldvörn sem að hluta til hjálpaði mikið til en kláruðum það ekki. Maður sofnaði svolítið á verðinum. En við ætlum að fara í fleiri varnir fyrir Guðmundarlund og aðra lundi,“ segir Kristinn.
Það tók slökkvilið marga klukkutíma að ráða niðurlögum eldsins og enn má sjá sviðna jörð þar sem hann geisaði.
„Núna er gróður að koma. Tré, runnar hafa orðið fyrir talsverðum skemmdum. Sums staðar mikið, sums staðar lítið. En það á eftir að koma betur í ljós. Hins vegar sviðnaði jörðin. Mosinn er yfirleitt farinn. Hann er ónýtur. En nú eru að koma upp grös, sérstaklega lúpínan. Hún mun verða mjög falleg eftir svona tíu til fimmtán daga. Hún er aðeins að byrja að blómstra. En á heildina litið þá sluppum við vel,“ segir Kristinn.