Samkvæmt lokatölum voru alls 31.780 sem sögðu já eða 46,95 prósent af greiddum atkvæðum en 35.903 sögðu nei eða 53,05 prósent. Auðir seðlar voru 228 og ógildir 224.
Kjörstjórnin í Suðvesturkjördæminu lét bíða eftir sér og voru niðurstöður þeirra það sem gerði það skýrt fyrir þjóðinni að svarið yrði nei.
Talningin í Kraganum virðist hafa verið nokkuð frábrugðin talningu á öðrum stöðum. Samkvæmt fyrstu tölum voru fylkingarnar með nákvæmlega jafn mörg atkvæði en í öðrum tölum hafði Nei-fylkingin sigið fram úr.
Ekki var tilkynnt um fjölda ógildra eða auðra atkvæðaseðla fyrr en í lokatölum.
JÁ
0,0%
+0,0%
0,0%
NEI