Lokatölur í Reykjavík: „Þetta voru ekki góðar tölur fyrir jáið“

Lokatölur í Reykjavík: „Þetta voru ekki góðar tölur fyrir jáið“

Lokatölur í Reykjavík: „Þetta voru ekki góðar tölur fyrir jáið“

Aðrar tölur úr Suðurkjördæmi

Já 8.636 (39,2%)

Nei 13.397 (60,8%)

Nú eru örfáar mínútur í aðrar tölur úr Suðurkjördæmi. Við fylgjumst með.

Lokatölur úr Reykjavíkurkjördæmi suður

Já 20.738 (54,5%)
Nei 17.317 (44,5%)

Fréttir af þjóðaratkvæðagreiðslunni tróna á forsíðum helstu fjölmiðla heims og ljóst að augu margra beinast að Íslandi.

Nýjar tölur úr Suðvesturkjördæmi:

Já 15.900 (48,5%)
Nei 16.900 (51,5%)

Lokatölur úr Reykjavík norður:

Já 22.266 (57,5%)
Nei 16.448 (42,5%)

„Þetta voru ekki góðar tölur fyrir jáið,“ segir Hafsteinn Einarsson, doktor í stjórnmálafræði. Stefnan sé í átt að nei.

Kosningavakan er hafin aftur í sjónvarpi. Við bíðum enn eftir lokatölum úr Reykjavíkurkjördæmunum og næstu tölum úr Suðvesturkjördæmi. Þær ættu að berast von bráðar.

Það er rétt að geta þess að kosningavökunni í sjónvarpi er ekki lokið. Hins vegar var gert stutt hlé nú skömmu fyrir klukkan 2 meðan við bíðum eftir næstu tölum.

Þær eru væntanlegar á næstu fimmtán mínútunum og þá fer útsending aftur í gang. Þetta verða lokatölur úr Reykjavíkurkjördæmunum.

Meðan við tölunumþá skulum við fara yfir stemninguna sem var á kosningavökunum.

Ari Páll Karlsson fréttamaður tók þessar myndir á vökum já- og neisinna í kvöld. Birta Björnsdóttir fréttamaður fylgdist með vöku já-sinna, sem er við það að ljúka núna klukkan tvö.

Nú þegar talning er komin vel á veg, er rétt að fara að huga að utankjörfundaratkvæðum.

Um 23% fólks á kjörskrá greiddi atkvæði utan kjörfundar. Það gætu verið upp undir 30% af greiddum atkvæðum. Þessi atkvæði eru talin síðast og hafa því líklegast ekki enn verið birt.

Heiðar Örn Sigurfinnsson spurði Hafstein Einarsson, doktor í stjórnmálafræði, hvort einhverjar rannsóknir hefðu verið gerðar á utankjörfundaratkvæðum og þeim hópi sem greiðir með þeim hætti.

„Það er risaspurning sem ég get ekki hæglega svarað,“ segir Hafsteinn. En ef einhvern efnilegan stjórnmálafræðinema vanti efnivið í ritgerð sé þetta tilvalið.

Heiðar bendir á að margir þeir sem greiði utan kjörfundar búi erlendis, til að mynda í aðildarríkjum ESB. Slíkt gæti haft áhrif á afstöðu fólks, í hvora áttina sem það nú er.

Aðrar tölur úr Reykjavíkurkjördæmi suður:

Já 14.637 (55,5%)

Nei 11.738 (44,5%)

Hér er sama uppi á teningnum og í Reykjavíkurkjördæmi norður. Tölurnar eru örlítið betri fyrir nei-hreyfinguna heldur en fyrstu tölurnar.

„Þetta hefur verið heldur betra fyrir neiið heldur en jáið,“ segir Hafsteinn þegar hann vísar í nýjustu tölur.

Patrekur Jaime segist hafa staðið „eins og hálfviti“ í kjörklefanum í 10 mínútur í dag og reynt að komast að niðurstöðu. Þetta er fólkið sem kom upp í hugann áður en hann greiddi atkvæði.

Baldvin Þór og Patrekur gerðu saman 25 hlaðvarpsþætti í sumar um þjóðaratkvæðagreiðsluna. Í kvöld hittust þeir aftur og ræddu allar nýju stjörnurnar sem hafa sprottið upp í já- og nei-hreyfingunum.

Aðrar tölur úr Reykjavíkurkjördæmi norður.

Já: 16.457 (59,0%)
Nei: 11.413 (41,0%)

Hafsteinn Birgir Einarsson, doktor í stjórnmálafræði, bendir á að þetta séu í raun ekki það góðar tölur fyrir jáið. Hlutfall jáatkvæða lækkar milli talna í kjördæminu.

Reykjavíkurkjördæmi norður er samkvæmt spálíkani sterkasta kjördæmi jásins. Líkanið gerir ráð fyrir að viðmið fyrir jafntefli á landsvísu feli í sér að 63% atkvæða í þessu kjördæmi séu greidd jái.

Hér eru komnar aðrar tölur úr Suðurkjördæmi.

Já 5.964 (39,9%)

Nei 9.001 (60,1%)

Hér hefur hlutfallið breyst örlítið frá fyrstu tölum í átt að neii. Eftir fyrstu tölur var hlutfall jásins 40,2% í kjördæminu en nei 59,8%.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar segir ógnanir og hótanir ekki eiga að vera veruleiki neins þó að fólk í kosningabaráttu láti ýmislegt yfir sig ganga.

Hún greindi frá því í viðtali á Bylgjunni í gær að henni hefðu borist alvarlegar hótanir sem væru á borði lögreglu.

„En síðan vil ég bara undirstrika það að þessi kosning snýst ekki um mig sem persónu eða Ólaf Ragnar, eða Halldór Benjamín. Þetta snýst um miklu stærra og meira: hagsmuni Íslands,“ sagði Þorgerður við Birtu Björnsdóttur fréttamann á kosningavöku já-hreyfinganna.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist ótrúlega ánægð með það hvað kjörsóknin er mikil. „Það sýnir að fólk hefur áhuga á þessu máli. Þetta er vegferð sem fólk hefur skoðun á og það hefur skilað sér,“ segir hún.

„Ef þetta verður já, og sérstaklega ef það kemur fram þessi skipting sem er á milli landsbyggðar og höfuðborgar, þá þurfum við að vanda okkur sérstaklega og taka til greina áhyggjur sem eru hér að birtast.“

Fréttamenn okkar hafa verið á kosningavökum já- og neihreyfinganna í miðborg Reykjavíkur í allt kvöld.

Þeir segja að nú þegar fyrstu tölur eru komnar úr öllum kjördæmum sé heldur léttara yfir fólki á jávökunni. Á báðum vökum bíða menn spenntir eftir næstu tölum en eitthvað hefur dregið úr mannmergðinni hjá nei-hreyfingunni í Kolaportinu.

Það er þó ekki endilega víst að það sé vegna þess að fólk hafi játað sig sigrað. Fréttamenn okkar segja að ótrúlega heitt sé í Kolaportinu og sjónvarpsáhorfendur hafa kannski tekið eftir að margir viðmælendur á þeirri vöku eru kófsveittir.

Nú eru fyrstu tölur komnar úr öllum kjördæmum og já-hliðin með naumt forskot.

Hér þarf að hafa í huga að búið er að telja hærra hlutfall atkvæða í Reykjavík en annars staðar á landinu en Reykjavík er hallari undir já en önnur kjördæmi.

Annað sem getur skipt máli er hvaða atkvæði hafa verið talin innan kjördæmisins.

Hafsteinn Birgir Einarsson, doktor í stjórnmálafræði, bendir á að Norðausturkjördæmi sé það kjördæmi sem hafi komið best út fyrir jáhreyfinguna, séu fyrstu tölur bornar saman við skoðanakannanir og spálíkön.

Þar hefur já fengið 44%, samanborið við 38% samkvæmt spálíkani.

Hafsteinn bendir á að ef atkvæði frá Akureyri eru talin áður en atkvæði frá öðrum byggðarlögum eru talin geti það skýrt stöðuna. Þannig gæti nei-hliðin sótt á í kjördæminu eftir því sem líður á.

Fjármálaráðherra og varaformaður Viðreisnar er bjartsýnn á niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

Aðspurður segir hann Viðreisn ekki standa og falla með niðurstöðunni.

„Nei, engan veginn. Eins og skýrt hefur komið fram í máli Þorgerðar Katrínar þá er flokkurinn stofnaður utan um það að tryggja hagsmuni almennings gegn ákveðinni sérhagsmunagæslu sem hefur verið í íslensku samfélagi.“

Formenn stjórnarandstöðuflokkanna á þingi eru sammála um að tæpara geti þetta ekki verið.

„Það er alveg ljóst að það er hífjafnt á milli fylkinga. Alveg sama hvernig fer held ég að það þurfi allir nokkra daga til að jafna sig,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins.

Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, tekur undir þetta og segir mikilvægt að ef nei-hliðin sigrar þurfi hún að leggja sig fram um að skilja hvaðan jáhreyfingin kemur og öfugt.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir stöðuna mjög spennandi. Hann bendir á að við höfum enn ekki góða mynd á það hvernig atkvæði dreifast innan kjördæmis.

Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi.

Já 9.900 (50,0%)
Nei 9.900 (50,0%)

Er þetta eitthvert grín?

Þetta segir Hafsteinn Birgir Einarsson stjórnmálafræðingur um fyrstu tölur. Tölur hafa borist úr fimm kjördæmum og vantar því einungis fyrstu tölur úr Kraganum, fjölmennasta kjördæminu.

Hafsteinn Birgir segir spálíkanið sveiflast fram og til baka á milli já og nei við hverjar tölur. Þrátt fyrir að já-ið hafi tekið stökk upp á við séu fyrstu tölur í Reykjavík norður, 59,4% undir því sem hann gerði ráð fyrir.

„Miðað við væntingar þá verður Reykjavík norður að vera sterkasta kjördæmi já-sins. Þannig að þar var ég með áætlað að já-ið þyrfti að ná 63,5% þannig þar er þetta töluvert undir því sem það þyrfti að ná í Reykjavík norður. En þetta er auðvitað breytingum háð.“

Björn Malmquist fréttamaður er í Brussel. Hann segir að gera megi ráð fyrir einhverjum yfirlýsingum frá ráðamönnum innan Evrópusambandsins á samfélagsmiðlum strax í fyrramálið þegar niðurstaða liggur fyrir.

Það sé nokkur eftirvænting í Brussel eftir niðurstöðunni. Marta Kos, stækkunarstjóri ESB, hafi talað um að atkvæðagreiðslan á Íslandi væri á vissan hátt mælikvarði á það hversu aðlaðandi Evrópusambandið væri fyrir ný ríki.

Björn segir því nokkuð ljóst að verði niðurstaðan já verði því tekið vel.

„Það er reyndar ekki þannig að það vanti umsóknarríki. Það eru níu núna formlega á listanum.“

Verði niðurstaðan nei verði það eflaust einhver vonbrigði fyrir framkvæmdastjórn ESB og aðra í sambandinu en það breyti þó litlu um samskipti og samstarf Íslands við Evrópusambandið, enda sé EES-samningurinn enn í gildi.

Fyrstu tölur úr Reykjavík norður:

Já: 12.442 (59,4%)

Nei: 8.507 (40,6%)

Fyrstu tölur úr NA:

Nei 5.558 (56,0%)

Já 4.359 (44,0%)

Hér koma fyrstu tölur úr Reykjavíkurkjördæmi suður.

Já: 11.647 (55,9%)

Nei: 9.189 (44,1%)

Hér koma fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi.

Nei: 3.527 (60,8%)
Já: 2.277 (39,2%)

„Þarna er jáið að fá hærra hlutfall en í Gallup-könnuninni,“ segir Hafsteinn Birgir Einarsson, doktor í stjórnmálafræði. Þar fékk jáið 32% en hann bendir á að mikil óvissa hafi verið með tölurnar vegna þess hve fá svör bárust úr kjördæminu.

Viðhorf ungs fólks til þjóðaratkvæðagreiðslunnar hafa tekið miklum breytingum í skoðanakönnunum á síðustu mánuðum.

Í júní sögðust 37% fólks á aldrinum 18–29 ára líkleg til að kjósa nei og 63% sögðust líkleg til að kjósa já í Þjóðarpúlsi Gallup. Nú í lok ágúst sögðust 60% aftur á móti hallast að nei og 40% að já.

Hafsteinn Birgir Einarsson stjórnmálafræðingur segir fólk öllu jafna verða fastara í sínum viðhorfum til stjórnmála með aldrinum. Ungt fólk sé aftur á móti oft enn að móta afstöðu sína og því beinist kosningaherferðir oft meira að því.

„Þetta bendir auðvitað til þess að eitthvað hafi tekist hjá nei-hreyfingunni í þeim efnum á síðustu metrunum.“

Fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi eru komnar.

Já 3.901 (40,2%)

Nei 5.806 (59,8%)

Hafsteinn Einarsson, doktor í stjórnmálafræði, segir að þessar fyrstu tölur rími við niðurstöður kannana. „Þetta er mjög í átt við það sem við bjuggumst við.“

Halldór Benjamín Þorbergsson, stjórnarformaður Áfram Ísland, segir kraftinn í baráttunni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar hafa verið með ólíkindum.

Hann hefði ekki órað fyrir því þegar Áfram Ísland var stofnað að það myndi takast að byggja upp svo öflug samtök þvert á flokka og hreyfingar.

„Ég er mjög hreykinn af því og stoltur að sjá,“ segir Halldór.

Áfram Ísland hafi haldið opna fundi út um allt land og mæting á þá farið fram úr öllum væntingum.

„200 manna fund á Akranesi, 300 manna fund á Selfossi, 400 manna fund í Hofi á Akureyri og síðan auðvitað rúsínan í SS-pulsuendanum: 2500 manns á útifundi á Austurvelli hér á fimmtudaginn.“

Hafsteinn segir að hægt sé að gera ráð fyrir að talning atkvæða verði nokkuð einföld enda þurfi aðeins að flokka í tvo bunka. Þó geti ávallt komið upp ófyrirséð vandræði, t.d. við flutning atkvæða.

Nú styttist í fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi, sem eru væntanlegar hvað úr hverju.

„Þetta er alltaf óvissuferð þegar maður leggur af stað í kosningabaráttu því mín starfslýsing var engin,“ segir Heiða Kristín Helgadóttir, sem hefur aðstoðað Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í kosningabaráttunni.

Spurð hvort hún hafi saknað einhvers úr baráttunni segir hún að hún hefði viljað sjá meiri umræðu um „stóru myndina“. „Ég hefði viljað sjá okkur sleppa því að ljúga til um sæstrengi og að það yrði ekki önnur þjóðaratkvæðagreiðsla.“

Hún telur þó að kosningabaráttan hafi verið þroskaferli.

„Sama hvernig fer í kvöld verð ég ótrúlega ánægð með það ef við sem þjóð höfum náð að ræða um stöðuna, undanþágur og sérlausnir í heilt sumar.“

Hafsteinn Birgir Einarsson stjórnmálafræðingur mun standa kosningavaktina með þeim Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur og Heiðari Erni Sigurfinnssyni fréttamönnum í kvöld.

Hann segir óhætt að gera ráð fyrir töluverðum mun á milli kjördæma. Aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið hafi notið meiri stuðnings í Reykjavík en á landsbyggðinni. Samkvæmt könnunum sé afstaðan nokkuð skipt í Suðvesturkjördæmi.

Kjörstöðum var lokað nú klukkan 22. Innan skamms hefst talning atkvæða.

Kosningavakan í sjónvarpi hefst klukkan 22:20.

Margir velta eflaust fyrir sér hvenær niðurstaðan verður orðin nógu afgerandi til þess að hægt sé að slá því föstu að úrslitin séu ráðin.

Hafsteinn Einarsson, doktor í stjórnmálafræði og sérfræðingur kosningavökunnar, er höfundur spálíkans sem ætlað er að veita innsýn í það.

Hér að neðan má sjá líkanið. Þar er hægt að slá inn talin atkvæði í hverju kjördæmi fyrir sig. Líkanið birtir þá spá um líklega niðurstöðu.

Þangað til fyrstu tölur birtast má leika sér að því að prófa sig áfram.

Í þjóðaratkvæðagreiðslu skipta kjördæmi landsins ekki beinlínis máli fyrir útkomuna. Niðurstaðan ræðst bara af heildarfjölda atkvæða á landsvísu. En atkvæði eru þó talin eftir kjördæmum, á einum stað í hverju kjördæmi.

Við eigum von á fyrstu tölum úr Suðurkjördæmi strax á ellefta tímanum, en tölum frá öðrum kjördæmum upp úr miðnætti.

Síðan tekur biðin við. Síðustu tölur gætu borist úr Norðvestur- og Norðausturkjördæmi klukkan sjö í fyrramálið.

Kjörsókn virðist vera með besta móti og útlit fyrir að hún sé meiri en í þjóðaratkvæðagreiðslum síðustu ára. Í þeim þremur þjóðaratkvæðagreiðslum sem hafa verið haldnar á lýðveldistímanum, fyrir þessa, var kjörsókn á bilinu 49–75%.

Kjörsóknin í dag virðist hins vegar vera sambærileg við kjörsókn í alþingiskosningunum 2024, þegar hún var 80,2%. Hvort hún reynist meiri verður að koma í ljós.

Hér að neðan eru nýjustu tölur um kjörsókn í öllum kjördæmum. Í sviga er samanburður við sama tíma árið 2024 (plús þýðir meiri kjörsókn, en mínus minni kjörsókn)

Reykjavík norður - kl. 21: 56,81% (-4%)
Reykjavík suður kl. 21 – 56,77% (-5,91%)
Suðvestur kl. 21 – 54,5% (-7,3%)
Norðaustur - Nýlegar tölur ekki fengist
Norðvestur - kl. 17:30 – 53,79% (-12,66%)
Suður - kl. 20 59,42% (-0,42%)

Vert er að geta þess að tölurnar hér að ofan sýna aðeins kjörsókn á kjördag. Í fréttum í gærkvöld kom fram að 23% fólks á kjörskrá hefði þegar greitt atkvæði utan kjörfundar, og enn áttu atkvæði eftir að bætast við. Til samanburðar var hlutfallið 20,9% í þingkosningunum 2024. Tölur um kjörsókn utan kjörfundar eru ekki greindar eftir kjördæmum.

Gott kvöld,

Velkomin í beina fréttavakt frá kosningavöku RÚV. Nú er klukkustund í að kjörstöðum verði lokað – á slaginu 22. Kosningavaka í sjónvarpi hefst klukkan 22:20.

Hér á vefnum fylgjumst við með gangi mála, greinum frá nýjustu tölum um leið og þær berast, greinum gögnin og leitum viðbragða.

Við fylgjum síðasta atkvæði í hús.

#ekki #lokatölur #reykjavík #voru #þetta


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-29-lokatolur-i-reykjavik-thetta-voru-ekki-godar-tolur-fyrir-jaid-485355

📰 Aðrar fréttir

Hundreds of IDF investigations into killings without public outcome, BBC Verify finds
📅 15.10.2026 👁️ 1
Hundreds of IDF investigations into killings without public outcome, BBC Verify finds
BBC Verify has identified 254 incidents from the past three years the Israeli military said it is reviewing after being accused of harm.
Falin myndavél fannst í sturtum kvenkyns hermanna
📅 15.10.2026 👁️ 2
Falin myndavél fannst í sturtum kvenkyns hermanna
Varnarmálaráðuneyti Ástralíu hefur hafið rannsókn á því hvernig falin myndavél rataði í klefa um borð í einu skipa sjóhersins.Ábending um að myndavéli...
Bækur Sally Rooney teknar úr sölu vegna stuðnings við Palestine Action
📅 15.10.2026 👁️ 2
Bækur Sally Rooney teknar úr sölu vegna stuðnings við Palestine Action
Írski rithöfundurinn Sally Rooney segist vera tilneydd til að taka bækur sínar úr sölu í Bretlandi vegna stuðnings hennar við samtökin Palestine Actio...
White House defends new press secretary Katie Zacharia amid questions about her legal credentials
📅 15.10.2026 👁️ 2
White House defends new press secretary Katie Zacharia amid questions about her legal credentials
Katie Zacharia does not appear to be registered to the legal bar in any state where she has lived.
North Korea and China open new bridge after 12-year delay
📅 15.10.2026 👁️ 1
North Korea and China open new bridge after 12-year delay
China is the North's largest trading partner and a lifeline against the sanctions Pyongyang faces.
Viðvaranir gular en áfram hríð og óvissustig vegna snjóflóðahættu
📅 15.10.2026 👁️ 3
Viðvaranir gular en áfram hríð og óvissustig vegna snjóflóðahættu
Veðurviðvaranir eru nú allar gular en enn þá er norðan- eða norðvestanhríð í þeim landshlutum þar sem viðvaranir gilda.Á Vestfjörðum er slæmt skyggni ...
Retired US generals call on Pentagon to cancel livestream execution
📅 15.10.2026 👁️ 2
Retired US generals call on Pentagon to cancel livestream execution
Livestreaming the execution of Nidal Hasan "will taint the honor of the military that employs it, and a nation that allows it," 72 former officers sai...
Nýtt háskólanám í vímuefnaráðgjöf hefst næsta haust
📅 15.10.2026 👁️ 3
Nýtt háskólanám í vímuefnaráðgjöf hefst næsta haust
Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti nýverið að bjóða upp á tvær nýjar námsleiðir við skólann. Það verður boðið upp á diplómu- eða meistaranám í ...
„Þessi á­kvörðun mun kosta mörg manns­líf“ - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
„Þessi á­kvörðun mun kosta mörg manns­líf“ - Vísir
Selenskí er í opinberri heimsókn í Bretlandi og gaf sér tíma til að mæta í viðtal hjá Piers Morgan. Þar var fjallað um takmarkanirnar á Starlight-tækn...
Dog that hunts invasive sea creature named animal of the year
📅 14.10.2026 👁️ 5
Dog that hunts invasive sea creature named animal of the year
A working is named animal of the year for hunting out an invasive marine creature, the carpet sea squirt.
Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð - Vísir
Vegagerðin setur á óvissustig og tók hún gildi klukkan tíu í kvöld. Óvissustig þýðir að veginum gæti verið lokað með skömmum fyrirvara. Einnig eru Þrö...
SOS Children's Villages International withholds report into its role in 'disappeared' Syrian children
📅 14.10.2026 👁️ 1
SOS Children's Villages International withholds report into its role in 'disappeared' Syrian children
SOS Children's Villages International has acknowledged that more than 140 children were taken to its facilities by Syrian security services.
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð
📅 14.10.2026 👁️ 5
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð
Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð á Vestfjörðum. Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi á Vestfjörðum, Strönd...
Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá - Vísir
Lyfjafyrirtæki þurfa að sækja um markaðsleyfi í öllum ríkjum þar sem til stendur að setja lyf á markað. Mikill fjöldi nýrra sérhæfðra lyfja hefur komi...
Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“
📅 14.10.2026 👁️ 5
Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“
Breskur maður á fertugsaldri hefur verið handtekinn eftir að hafa fróað sér í lest, meðal annars fyrir framan konur, í samanlagt 13 klukkutíma. Maðuri...
Reform faces criticism after councillors filmed making racist comments
📅 14.10.2026 👁️ 5
Reform faces criticism after councillors filmed making racist comments
Reform says all of those people filmed by ITV are under investigation having resigned or been suspended.
Cappuccino fyrir eigendur og puppoccino fyrir hundana
📅 14.10.2026 👁️ 5
Cappuccino fyrir eigendur og puppoccino fyrir hundana
Gestir á kaffihúsi einu í Kópavogi eru misvel upp aldir en allir jafn velkomnir, hvort sem þeir ganga á tveimur jafnfljótum eða fjórum fótum. Á kaffih...
Brooklyn novelty shop reeling from 'surreal' row with Kelly Clarkson over mechanical bird
📅 14.10.2026 👁️ 5
Brooklyn novelty shop reeling from 'surreal' row with Kelly Clarkson over mechanical bird
Art of Play says its staff have been threatened after the singer complained online about how she was treated.
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum
📅 14.10.2026 👁️ 4
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum
Saurora Grace er 32 ára kona frá Manchester í Englandi. Hún starfar sem svokallaður kynlífsstaðgengill eða sex surrogate, einstaklingur sem aðstoðar f...
Val­höll skrefi nær því að verða níu­tíu her­bergja hótel - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Val­höll skrefi nær því að verða níu­tíu her­bergja hótel - Vísir
Valhöll hefur um áratugaskeið verið þekkt sem höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins. Alva capital og flokkurinn undirrituðu kaupsamning um húsið í febrúar...
Sigríður og eiginmaður hennar eru 1 af 6: „Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Sigríður og eiginmaður hennar eru 1 af 6: „Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða“
„Ég og maðurinn minn erum 1 af 6. Við erum eitt af þeim pörum sem vita manna best að barneignir eru ekki sjálfgefnir lífsviðburðir heldur ferli sem in...
Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi - Vísir
Faber, útgefandi Rooney, sagði í yfirlýsingu í dag að vegna lagasetningar í Bretlandi geti Faber ekki greitt Rooney tekjur sem aflað er í Bretlandi fy...
Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða - Vísir
Prince, sem hefur verið dyggur stuðningsmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta, rekur nú málaliðafyrirtækið Vectus Global, sem starfar meðal annars á H...
UK threatens visa bans for Eritrea over migrant return policy
📅 14.10.2026 👁️ 4
UK threatens visa bans for Eritrea over migrant return policy
The home secretary said she would not hesitate to impose measures on other countries "refusing to co-operate".
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum
📅 14.10.2026 👁️ 4
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum
Nokkuð kólnar í veðri á höfuðborgarsvæðinu með kvöldinu og í fyrramálið og viðbúið að hitinn verði nálægt frostmarki í efri byggðum. Lögreglan hvetur ...
Ugla yfir­gefur borgina - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ugla yfir­gefur borgina - Vísir
„Jæja, litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ skrifar hann í færs...
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps
📅 14.10.2026 👁️ 4
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps Fréttin14. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Commen...
Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig
📅 14.10.2026 👁️ 4
Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig
Leikstjórinn Penelope Spheeris gagnrýndi leikkonuna Jennifer Aniston fyrir að hafa, eftir því sem Spheeris heldur fram, gefið henni kynlífstæki í þeim...
Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set
📅 14.10.2026 👁️ 4
Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set
„Jæja litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ segir Árni Árnason, ...
Mynd af hinstu stundinni í rússíbananum í dreifingu – Fjölskyldan biðlar til almennings að hætta að dreifa
📅 14.10.2026 👁️ 4
Mynd af hinstu stundinni í rússíbananum í dreifingu – Fjölskyldan biðlar til almennings að hætta að dreifa
Maðurinn sem lést í rússíbanaslysinu í Georgíufylki í fyrradag var nýgenginn í samtök rússíbanaáhugafólks. Samfélagið er í molum og krefst aðgerða til...
„Ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi“
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi“
Andri Þór Guðmundsson, stjórnarformaður Beru móðurfélags Ölgerðarinnar, og fyrrum forstjóri Ölgerðarinnar til tveggja áratuga segir fyrirtækið alltaf ...
Why Zelensky's meeting with Burnham matters
📅 14.10.2026 👁️ 3
Why Zelensky's meeting with Burnham matters
Prime Minister Andy Burnham welcomed President Zelensky to Downing Street on Wednesday, as Ukraine's leader looks to shore up his European allies five...
Tekið að flæða að húsum í Vík
📅 14.10.2026 👁️ 4
Tekið að flæða að húsum í Vík
Nokkrar líkur eru á að sjór geti flætt yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal á háflóði í kvöld og því gæti þurft að loka honum. G. Pétur Matthíass...
Ólíklegt að flæði yfir þjóðveginn við Vík
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ólíklegt að flæði yfir þjóðveginn við Vík
Ólíklegt þykir að sjór flæði yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal. Vegagerðin og björgunarsveitir voru viðbúnar því að veginum yrði lokað því öld...
Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru - Vísir
Heiðrún Hauksdóttir, einnig þekkt sem Heidrunguide, var stödd í Reynisfjöru fyrr í dag þar sem töluverður öldugangur var. Hún náði þessu myndskeiði þa...
Starlink: Musk says US government may be behind slowdown of Ukraine drone speeds
📅 14.10.2026 👁️ 4
Starlink: Musk says US government may be behind slowdown of Ukraine drone speeds
Ukraine says Starlink access has improved but it is still facing speed limits which are disrupting its battlefield "missions".
Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart
📅 14.10.2026 👁️ 4
Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir gríðarlega mikilvægt að markaðir séu opnir og að það sé ekki komið í veg fyrir að ný fyri...
Ozempic gerir óskunda í samskiptum mæðra og dætra
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ozempic gerir óskunda í samskiptum mæðra og dætra
Þið hafið kannski heyrt um Ozempic-hár, -píku, -typpi, -andlit og fleira sem rekja má til aukaverkana eða óvæntra afleiðinga þessu vinsæla þyngdarstjó...
Gefur í skyn að banda­rísk stjórn­völd hafi sett tak­markanir á Úkraínu­menn - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Gefur í skyn að banda­rísk stjórn­völd hafi sett tak­markanir á Úkraínu­menn - Vísir
Fjallað var um það á Vísi í dag að úkraínskir hermenn hafi fundið fyrir takmörkunum sem felast í því að þegar móttökustöðvarnar nái tilteknum hraða sl...
Stigu trylltan dans á Saint Pete - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Stigu trylltan dans á Saint Pete - Vísir
Meðal annarra tónlistaratriða voru Herra hnetusmjör, Úlfur Úlfur, Elvar Orri og Steindi og Auddi en þeir síðastnefndu fengu Pétur til liðs við sig í s...
Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“
„Ekki skiptir maður við bófa! Hvað verður um hátíðarblandið? Hvar er núna gamla (en alls ekki bragðgóða) Sanitas maltið, Thule appelsínið og Vallasdry...
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu
📅 14.10.2026 👁️ 4
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu
Búast má við talsverðri ofankomu sem hefur áhrif á færð og samgöngur á norðanverðu landinu fram á kvöld og inn í nóttina, segir Hera Guðlaugsdóttir ve...
Verkalýðsbaráttan er eilífðarverkefni segir fráfarandi forseti
📅 14.10.2026 👁️ 4
Verkalýðsbaráttan er eilífðarverkefni segir fráfarandi forseti
Forseti ASÍ og forsætisráðherra ræddu lærdóminn af kjarasamningunum í ávörpum við setningu þriggja daga þings Alþýðusambandsins í morgun. Báðir frambj...
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“
Eigendur gleraugnaverslunar sem barst krafa um bótagreiðslu, vegna notkunar á tónlist í myndbandi á samfélagsmiðli, leggja til að höfundalögum verði b...
„Ég sá bara upp í himininn upp um þaklúguna“
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Ég sá bara upp í himininn upp um þaklúguna“
Þrjú þök fuku af húsum á Siglufirði í veðurofsanum sem gengur nú yfir mestallt landið. Þakið á heimili Karenar Birgisdóttur, er eitt þeirra sem fauk.H...
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru
📅 14.10.2026 👁️ 4
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru
Nokkuð hættulegar aðstæður mynduðust við Reynisfjöru í dag vegna veðurs og mikillar ölduhæðar, fyrr en spár gerðu ráð fyrir. Landeigendur höfðu virkja...
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana
📅 14.10.2026 👁️ 5
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana
Bítillinn Paul McCartney er ekki ánægður með hvernig hæð hans er framsett í væntanlegri fjögurra þátta kvikmynd Sam Mendes um Bítlana.„Við vorum allir...
What if you could turn off your algorithm? Australia is about to try
📅 14.10.2026 👁️ 1
What if you could turn off your algorithm? Australia is about to try
New legislation is being tabled in Australia's parliament on Thursday to force big tech to allow users to switch off algorithms which send them recomm...
Gekk berserksgang á heilsugæslustöð og hótaði læknum lífláti
📅 14.10.2026 👁️ 5
Gekk berserksgang á heilsugæslustöð og hótaði læknum lífláti
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir síbrotamanni til 3. nóvember næstkomandi.
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“
📅 14.10.2026 👁️ 5
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“
Sjúkratryggingar Íslands hafa ekki afhent Rótinni aðgang að samningi sínum við SÁÁ líkt og stofnunin átti að gera samkvæmt úrskurði úrskurðarnefndar u...