Stefnt er að því að fræsa og malbika tvo kafla á Vesturlandsvegi í kvöld og annað kvöld.
Kaflarnir sem stefnt er að því að fræsa og malbika eru annars vegar 670 metra kafli við Esjumela og hins vegar 1.500 metra langur kafli við Kollafjörð.
Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að frá 21 til sjö um morguninn verði vegurinn lokaður í norðurátt við Þingvallaveg. Hjáleið verður um Þingvallaveg, Kjósarskarðsveg og Hvalfjarðarveg.
Lokunin á aðeins við um þá sem eru að aka í norðurátt. Þeir sem aka í suðurátt geta ekið meðfram vinnusvæðinu en vegfarendur eru beðnir um að aka varlega og virða merkingar.