Vesturlandsvegur verður lokaður í norðurátt við Þingvallaveg frá klukkan 21 á sunnudagskvöld til klukkan 7:00 á mánudagsmorgun samkvæmt tilkynningu á vef Vegagerðarinnar. Ökumenn sem koma að norðan geta ekið veginn í suðurátt meðfram vinnusvæðinu en þeir eru beðnir um að aka varlega og virða merkingar.
Hjáleið verður um Þingvallaveg, Kjósarskarðsveg og Hvalfjarðarveg á meðan.
Vegkaflarnir sem á að fræsa og malbika eru annars vegar 670 metra langur kafli við Esjumela og hins vegar um 1.500 metra langur kafli við Kollafjörð.