Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í alþjóðlegri lögregluaðgerð þar sem ráðist var gegn netþjónustu sem gekk undir nafninu AudiA6. Þetta kemur fram í tilkynningu, en hjá AudiA6 fór fram mjög umfangsmikið peningaþvætti skipulagðra brotahópa. Rannsókn málsins hafði staðið yfir í langan tíma og teygði sig um víða veröld. Á Íslandi vann lögreglan á höfuðborgarsvæðinu að rannsókninni ásamt embætti ríkissaksóknara og í góðri samvinnu við íslenskt hýsingarfyrirtæki, en brotamennirnir höfðu misnotað íslenska innviði. Vegna málsins komu hingað til lands tveir fulltrúar frá bandarískri löggæslustofnun, en enginn var þó handtekinn vegna málsins.
Samkvæmt frétt Europol um málið hefur nú tekist að leysa þessa netþjónustu upp en peningaþvættið mun hafa átt sér stað í gegnum rafmynt. Grunur leikur á að AudiA6 hafi þvættað rúmlega 49 milljarða á árunum 2022-2025. Rannsakendur telja að þessi þjónusta hafi orðið miðstöð netglæpamanna sem vildu koma ávinningi brota sinna í verð án þess að hægt væri að rekja hann. Eins er talið að mennirnir á bak við netþjónustuna hafi haldið úti svæði á myrkvefnum sem kallaðist Dark2Web sem var markaður glæpamanna þar sem fólk gat komið sér í samband við netglæpamenn víða um heiminn.
Alþjóðleg lögregluaðgerð fór fram í gær og teygði anga sína víða. Rússi og Úkraínumaður voru handteknir í Georgíu, húsleit fór fram á þremur stöðum, 25 lén voru tekin niður, 30 netþjónar voru haldlagðir ásamt 80 bifreiðum og fjölda fasteigna í Georgíu.
Lönd sem tóku þátt í aðgerðinni voru, auk Íslands, Ástralía, Kanada, Frakkland, Georgía, Þýskaland, Japan, Pólland, Sviss, Bretland og Bandaríkin.
Í tilkynningu Europol er glæpastarfseminni lýst sem peningaþvætti á iðnaðarskala. Viðskiptavinir höfðu samband við þjónustuna í gegnum einkaskilaboðakerfi og millifærðu svo stolna rafmynt til glæpamannanna og fengu til baka „hreina“ fjármuni. Fyrir vikið fékk AudiA6 á bilinu 3-10 prósent fjárhæðarinnar í þóknun.
Nánar má lesa um málið hjá Europol.