Ekki leikur grunur á saknæmri háttsemi vegna andláts bandarísku leikkonunnar Hayden Panettiere. Þetta segir í yfirlýsingu lögreglunnar í Greenville í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum.Leikkonan lést í gær, 36 ára að aldri, en dánarorsök liggur ekki fyrir.Í frétt Page Six kemur fram að Panettiere hafi fundist meðvitundarlaus í íbúð í Greenville um klukkan 13:50 að staðartíma í gær. Kunningi hennar hringdi í neyðarlínuna en endurlífgunartilraunir viðbragðsaðila báru ekki árangur og var hún úrskurðuð látin á staðnum.
Lögregla tjáir sig um andlát Hayden Panettiere