Fimm gista fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir nóttina, en á tímabilinu frá klukkan 17 í gær til klukkan fimm í morgun voru var 41 mál bókað í kerfum lögreglu.
Lögregla fékk tilkynningu um stórfellda líkamsárás og voru tveir einstaklingar handteknir í tengslum við málið. Sá sem fyrir árásinni varð mun ekki vera í lífshættu.
Ekki koma frekari upplýsingar um málið fram en árásin átti sér þó stað í umdæmi lögreglustöð var 4 sem sinnir meðal annars verkefnum í Árbæ, Grafarholti, Grafarvogi, Norðlingaholti og Mosfellsbæ.
Í umdæmi lögreglustöðvar 1, sem sinnir meðal annars miðborginni, var ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og áfengis. Hann var einnig með fíkniefni meðferðis en að sögn lögreglu var bifreið mannsins gerð upptæk.