Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ernu Athichu Jónsdóttur, 17 ára. Í tilkynningu frá lögreglu segir að Erna, sem er með brún augu og sítt hár með ljósum strípum, sé grannvaxin og 170 cm á hæð.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ernu, eða vita hvar hana er að finna, eru vinsamlegast beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.