Guðrún Björg Birgisdóttir lögmaður hefur verið kærð fyrir fjárdrátt. Í kæru segir að hún hafi í störfum sínum sem skiptastjóri dánarbús konu dregið sér á annan tug milljóna króna. Lögmannafélag Íslands fór undir lok síðasta árs ítrekað fram á að Guðrún Björg skilaði inn fjárvörsluyfirlýsingu. Hún varð þó aldrei við beiðninni.
Heimildin greindi fyrst frá málinu.
Lögmannsstofa Guðrúnar Bjargar, Logia ehf., var úrskurðuð gjaldþrota 7. janúar á þessu ári. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður höfðar málið fyrir hönd tveggja erfingja konunnar.
Samkvæmt kæru, sem Vilhjálmur undirritar, er Guðrún Björg talin hafa dregið sér 12.571.625 krónur úr dánarbúinu. Féð var geymt á fjárvörslureikningi Logia ehf. Brotaþolar fara fram á að Vilhjálmur verði skipaður réttargæslumaður vegna rannsóknar lögreglu á málinu.
Ingimar Ingason, framkvæmdastjóri Lögmannafélags Íslands, staðfestir að lögmannsréttindi Guðrúnar Bjargar hafi verið felld niður í ársbyrjun að beiðni félagsins. Félagið fór fram á það sökum þess að Guðrún Björg hafði ekki skilað félaginu fjárvörsluyfirlýsingu, sem hafði átt að berast eigi síðar en 1. október á síðasta ári.
„Umræddur aðili skilaði ekki inn þessari skýrslu þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir,“ segir Ingimar. „Þess vegna var félaginu í raun og veru skylt að fara fram á niðurfellingu réttinda.“
Hann segir félagið þó ekki hafa aðild að málum sem þessum. Einu tól Lögmannafélags Íslands í slíkum málum séu í raun þau að leggja til niðurfellingu lögmannsréttinda.
Ekki náðist í Guðrúnu Björgu við vinnslu fréttarinnar.