Lögfræðingur MAST, Einar Örn Thorlacius, segir í samtali við DV að aðeins MAST geti kært til lögreglu það dýravelferðarbrot sem felist í því að þúsundum minka var sleppt úr búrum sínum í Dalsbúi í Mosfellsdal. Segist hann muni kalla eftir gögnum frá lögreglu á morgun og kæra málið í framhaldi af því.Orðrétt segir Einar: „Ég mun kalla á morgun eftir afriti af lögregluskýrslu um málið og kæra málið til lögreglunnar í framhaldi af því, að því er varðar dýravelferðarbrotið. Samkvæmt dýravelferðarlögunum getur enginn kært brot á þeim til lögreglu nema MAST.“
Lögfræðingur MAST ætlar að kæra málið til lögreglu