Loftsteinn sem stefndi á jörðina sprakk yfir norðausturhluta Bandaríkjanna í gær að sögn bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA. Drunur fylgdu sem bergmáluðu um svæðið með sprengikrafti á við 300 tonn af TNT.
Eldhnötturinn brotnaði í sundur yfir norðausturhluta Massachusetts og suðausturhluta New Hampshire klukkan 14:06 að staðartíma (kl. 18:06 að íslenskum tíma), sagði Jennifer Dooren, aðstoðarfréttastjóri bandarísku geimferðastofnunarinnar, í yfirlýsingu til AFP.
„Þessi eldhnöttur tengdist engum virkum loftsteinadrífum, heldur var um náttúrulegan hlut að ræða en ekki endurkomu geimrusls eða gervihnattar,“ sagði hún.
Var á yfir 120.000 km hraða
„Orkan sem losnaði við sundrunina er áætluð jafngilda um 300 tonnum af TNT, sem skýrir háværu drunurnar.“
Loftsteinninn var á meira en 120.000 km hraða á klukkustund í 65 kílómetra hæð þegar hann brotnaði í sundur að sögn Dooren.
Íbúar á svæðinu urðu skelkaðir vegna óvæntra, háværra druna og notendur á samfélagsmiðlum sögðu þær svo kröftugar að hús hefðu hristst.