Nýtt hitamet var slegið í Frakklandi í nótt, þegar meðalhiti í landinu náði 22 gráðum á Celsius - gamla metið, 21,6 gráða, var þó ekki orðið mjög gamalt, því það var sett aðfaranótt þriðjudags. Í gærdag var svo annað met slegið; þá mældist hitinn í París 40,9 gráður - mesti hiti frá upphafi mælinga í borginni.
Stjórnvöld í Frakklandi og reyndar mun víðar í Evrópu hafa gefið út rauðar viðvaranir síðustu daga vegna hitabylgjunnar sem haldið hefur álfunni í heljargreipum undanfarna daga - en í Frakklandi eru afleiðingar hitabylgjunnar, og leiðir til að fást við hana, orðnar að pólitísku bitbeini.
Deilan snýst um loftkælingu, sem er af skornum skammti í Frakklandi, rétt eins og í flestum öðrum ríkjum Evrópu. Aðeins um fjórðungur bygginga í Frakklandi er með loftkælingu og langflest sjúkrahús og skólar eru án þessa tækjabúnaðar - sem er ein ástæða þess að þúsundum skóla í Frakklandi var lokað í upphafi vikunnar og nemendum sagt að vera heima.
Lofar loftkælingu nái hún kjöri sem forseti Frakklands.
„Það er fáránlegt að fólk sé að deyja úr hita,“ sagði Marine Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar fyrr í þessari viku.
„Ef ég næ kjöri sem forseti Frakklands [í kosningunum næsta vor] þá mun ég setja á laggirnar víðtæka áætlun um loftkælingu, og byrja á byggingum þar sem viðkvæmasta fólkið heldur til; sem eru sjúkrahús, elliheimili og skólar.“
Það stóð ekki á svörum við þessum skilaboðum Le Pen: „Kemur ekki til greina,“ sagði Jean Luc Melenchon, leiðtogi vinstri flokksins La France Insoumise og líklegur keppinautur Le Pen um forsetaembættið.
„Ef við setjum upp loftkælingu alls staðar, þá eykur það bara skaðann,“ sagði hann og átti þar væntanlega við áhrifin af aukinni orkunotkun á loftslagsbreytingar.
Gamalgróin andstaða að molna
Rétt eins og annars staðar í Evrópu, þá hefur í gegnum tíðina verið talsverð andstaða við að eyða orku í loftkælingu - ekki aðeins vegna hás orkuverðs, heldur einnig vegna almennrar vitunar um að loftkæling hafi neikvæð áhrif á loftslag.
En þegar daglegt hitastig í frönskum borgum er um og yfir fjörtíu gráður dag eftir dag, þá hefur ýmislegt mátt undan láta - þar með talið gamalgróin andstaða við loftkælinguna; leiðtogi franskra græningja, Marie Tondelier, sagði til að mynda fyrr í vikunni að Frakkar þyrftu að setja upp svona búnað í skólum og sjúkrahúsum. „Þetta eru staðirnir sem þurfa nauðsynlega á loftkælingu að halda,“ sagði hún.