Tvö yngri systkini Madeleine McCann sem var rænt í Portúgal árið 2007 eru að gera það gott í heimi íþróttanna. Hugsanlegt er að þau komist á Ólympíuleikana í Los Angeles árið 2028.Staðfest hefur verið að Sean McCann, yngri bróðir Madeleine, muni keppa í sundi á Samveldisleikunum sem hefjast í Glasgow á fimmtudag, 23. júlí. Talið er að Amelie McCann, tvíburasystir hans, muni einnig keppa í þríþraut.
Litlu systkini Madeleine McCann slá í gegn á óvæntum vettvangi