Tónlistarmaðurinn Erpur Eyvindarson og kærasta hans, Lísbet Rós Ketilbjarnardóttir, láta fara vel um sig í Flórens á Ítalíu þessa dagana. Parið er svo ástfangið að Erpur sem sjaldan deildi myndum af ástarlífinu er farinn að birta myndir af betri helmingnum sínum á samfélagsmiðlum.
Dóluðu sér í Flórens
Kærustuparið Erpur og Lísbet nýttu frítímann og skoðuðu sig um í Flórens. Þau fóru meðal annars í gamlan myndakassa en slíka kassa er að finna víða um stræti Flórens. Tilvalið er að taka mynd af sér þar því það koma skemmtilegar og eigulegar svarthvítar myndir úr kassanum. Lísbet birti einnig mynd af flottum blómavegg sem mælt er með að skoða.



