Góða veðrið er komið hjá Línu Birgittu Sigurðardóttur áhrifavaldi en hún er stödd við Como-vatn á Ítalíu. Staðurinn þykir einstaklega rómantískur og heillandi. Lína Birgitta hefur birt nokkrar myndir af sér á samfélagsmiðlum og virðist lífið leika við hana.
Lína Birgitta ferðast mikið um heiminn en leitar gjarnan aftur og aftur til heimsborga eins og Parísar. Hún og kærasti hennar, kírópraktorinn og áhrifavaldurinn Guðmundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi kíró, elska París og eru þau dugleg að fara þangað í ástarfrí. Þau trúlofuðu sig í borginni árið 2022.
Nú er kærustuparið statt við Como-vatn ásamt vinum sínum, Agli Einarssyni og Guðríði Jónsdóttur. Þau njóta lífsins við sundlaugarbakkann og eru yfirleitt með vínglas við höndina.
Lína Birgitta birti myndir af sér á Hilton-hótelinu við Como-vatn. Hótelið er eitt af nútímalegri lúxushótelunum við vatnið, staðsett í bænum Como á suðvesturenda vatnsins. Það er ekki eins gamaldags og sögufrægu villuhótelin eins og Villa d'Este eða Grand Hotel Tremezzo heldur meira í nútímalegum ferðastíl með stílhreinni hönnun.