Líkur eru á að Bandaríkin og Íran skrifi undir samning á næsta sólarhringnum, frá þessu greindi forsætisráðherra Pakistans nú skömmu fyrir fréttir. Ísraelsher hefur haldið áfram árásum á Líbanon í dag.
Fimm hið minnsta hafa verið drepin í árásum Ísraela í Suður-Líbanon í morgun. Ísraelsher hefur í dag skipað íbúum tuttugu bæja og þorpa að flýja norður, yfir ána Zahrani. Talið er að Líbanon sé hluti af friðarsamningi Írans og Bandaríkjanna sem er sagður svo gott sem tilbúinn.
Stjórnvöld í Pakistan hafa verið í aðalhlutverki við að miðla málum milli ríkjanna tveggja síðustu vikur og skömmu fyrir hádegið birti forsætisráðherrann Shehbaz Sharif færslu á X.
Sharif segir líkur á að samningurinn verði fullkláraður á næstu 24 klukkustundum og verið sé að útbúa rafræna undirritun sem fari fram um leið og samningurinn sé tilbúinn.
Sharif þakkar bæði Bandaríkjunum og Íran og segist fullviss um að þetta samkomulag verði sterkur grunnur að varanlegum friði.
Ekki hefur verið gefið út hvað felst í samningnum en Reuters hefur eftir fjölda ónafngreindra heimildamanna að Íranir opni aftur fyrir umferð um Hormússund í skipum fyrir að Bandaríkin losi um milljarða dollara af frystum eignum Írans og aflétti viðskiptaþvingunum á olíuútflutning.
Stjórnvöld í Ísrael segjast ekki aðili að samningnum en Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, hefur samt sagt að samkomulagið bindi enda á stríðið í Líbanon.