Frá þessu er greint í tilkynningu frá lögreglunni á Vesturlandi. Þar segir að tvær fólksbifreiðar sem ekið var úr sitt hvorri áttinni hafi lent saman. Þrír voru fluttir á bráðamóttöku eftir slysið, ökumenn beggja bíla og farþegi annarrar þeirra.
Í tilkynningu lögreglu kemur ekkert fram um líðan hinna tveggja.