Maður barði tvo lögregluþjóna með kylfu sem hann náði af öðrum þeirra í átökum á Soho Road í Handsworth í Birmingham á föstudagsmorgun. Atvikið náðist á myndband sem hefur farið í dreifingu á samfélagsmiðlum og vakið umræðu um hæfni og þjálfun lögreglumanna.
Á myndbandinu sjást tveir lögregluþjónar glíma við mann sem þeir reyna að glíma í jörðina. Þeir skipa honum ítrekað að leggjast niður og hætta að veita mótspyrnu en maðurinn svarar því til að hann geti ekki séð. Á einum tímapunkti hótar annar lögregluþjónninn að beita rafbyssu.
Náði kylfu lögreglumannsins
Í átökunum fellur kylfa annars lögregluþjónsins í götuna. Maðurinn grípur hana, hrópar á lögreglumennina að fara frá sér og sveiflar henni í átt að þeim.
Hann hittir annan lögregluþjóninn í andlitið með kylfunni með þeim afleiðingum að lögregluþjónninn fellur til jarðar. Maðurinn nýtir sér síðan tækifærið, stekkur á reiðhjól og flýr vettvang.
Lögreglan leitar árásarmannsins
Lögreglan í West Midlands staðfesti að lögregluþjónninn sem varð fyrir högginu hafi verið fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar en verið útskrifaður síðar sama dag.
Rannsókn málsins stendur yfir og hefur lögreglan óskað eftir upplýsingum frá almenningi sem gætu leitt til þess að maðurinn verði handtekinn.
Myndbandið hefur vakið athygli fyrir rangar sakir og margir hafa gagnrýnt hvernig tveimur lögregluþjónum tókst ekki að yfirbuga manninn, gagnrýnt þær aðferðir sem þeir beittu og segja að þetta endurspegl skort á þjálfun lögreglumanna þar í landi.
Is this you @WMPolice?
That womans face at the end speaks for all of us.
Embarrassing. pic.twitter.com/0ucxZLDyhC
— Tommy Robinson 🇬🇧 (@TRobinsonNewEra) July 3, 2026