Danska umhverfisstofnunin leitar nú að úlfi sem hefur sést nærri mannabyggð á Vestur-Jótlandi. Umhverfisráðherra segir að réttast sé að skjóta úlfinn og fleiri leiðtogar hafa tekið undir það.
Úlfurinn sást fyrst fyrir viku, og þá á þremur stöðum nálægt húsagörðum í Nørre Nebel en lét svo ekkert á sér kræla. Í fyrrakvöld sást hann síðan nærri veitingastað í útjaðri bæjarins og það skapaði nokkurn kvíða meðal nærstaddra. Meðal annars sást hann skokka framhjá ærslabelg þar sem börn voru að leik.
Umhverfisstofnun Danmerkur hefur leitað úlfsins frá því hann sást í þeim tilgangi að aflífa hann en heimild er til þess í lögum ef fólki stafar hætta af honum. Mat sérfræðinga er að svo sé. Litlu munaði að hann næðist í gær en hann slapp. Úlfsins er ákaft leitað, meðal annars með drónum, og er almenningur hvattur til að senda stofnuninni skilaboð ef vart verður við úlfinn.
Christian Rabjerg Madsen umhverfisráðherra Danmerkur hefur lýst því yfir að hann vilji að úlfurinn verði skotinn. Stjórnarandstæðingar hafa tekið undir það og sakað ráðherrann um að bregðast ekki við með nógu afgerandi hætti.