Í tilkynningu Lögreglunna á Suðurlandi á Facebook segir að um klukkan 11 í morgun hafi lögreglu borist tilkynning um flugslys sunnan Mýrdalsjökuls. Einum manni á svifvæng hafi hlekkst þar á og hann orðið viðskila við samferðamenn. Björgunarsveitir og þyrla landhelgisgæslunnar hafi verið kölluð út til leitar og björgunar. Björgunaraðgerðir standi yfir.
Þess megi vænta að tilkynningin verði uppfærð eftir því sem aðgerðum vindur fram.
Leita flugmanns eftir flugslys við Mýrdalsjökul - Vísir