Leit að erlendum ferðamanni í grennd við Háafoss í Þjórsárdal verður framhaldið í dag. Nærri 200 björgunarsveitarmenn tóku þátt í leitinni í gær. Þyrla Landhelgisgæslunnar var einnig nýtt við leitina í gær auk fjölda dróna og gönguhópa.
Í tilkynningu Landsbjargar segir að aðstæður til leitar séu um margt erfiðar. Krapi og drulla er á leitarsvæðinu þar sem frost er að fara úr jörðu og það því nokkuð erfitt yfirferðar.
Að sögn Þorsteins M. Kristinssonar aðalvarðstjóra barst lögreglu tilkynning frá gististað eftir hádegi í gær eftir að ferðamaðurinn skilaði sér ekki. Eftir eftirgrennslan lögreglu var kallað eftir aðstoð björgunarsveita og Landhelgisgæslu.
Þorsteinn segir leitarsvæðið ekki mjög stórt eins og er og bundið við nágrenni Háafoss. Leitarsvæðið verði þó stækkað ef leitin ber ekki árangur.