Lögreglan í Ohio í Bandaríkjunum leitar byssumanns eftir að hann skaut nokkra gesti götuhátíðarinnar Old West End Festival í Toledo.
Í tilkynningu lögreglunnar í Toledo á X segir að lögregluþjónar hafi komið að mörgum fórnarlömbum skotárásarinnar á vettvangi. Margir hafi verið fluttir á sjúkrahús.
Íbúar og gestir hverfisins hafa verið beðnir um að halda sig fjarri hátíðarsvæðinu þar sem byssumannsins sé nú leitað.
Óljóst er með ástand fórnarlamba árásarinnar og sömuleiðis hve mörg þau eru, að því er segir í frétt CBS. Ekki liggur heldur fyrir hvað árásarmanninum gekk til.