Leikkonan Mayim Bialik hefur greint frá alvarlegum aukaverkunum sem hún varð fyrir eftir að hafa tekið einn skammt af vinsælu GLP-1 lyfi. Hún segir reynsluna hafa verið svo slæma að hún hafi þurft að fá vökva í æð vegna ofþornunar.
Bialik, sem er meðal annars þekkt fyrir leik sinn í gamanþáttunum The Big Bang Theory, lýsti reynslu sinni í grein sem hún skrifaði fyrir The Free Press.
Þar segir hún að þrír læknar hafi mælt með lyfinu í þeirri von að það gæti dregið úr einkennum ýmissa sjálfsofnæmissjúkdóma sem hún hefur glímt við árum saman.
GLP-1 lyf eru einkum þekkt fyrir að hjálpa fólki að léttast og eru einnig notuð við meðferð sykursýki af tegund 2. Þekktar tegundir þessara lyfja eru til dæmis Ozempic, Wegovy og Mounjaro, en ekki kemur fram hvaða lyf það var sem Bialik tók.
Hefur glímt við heilsubrest
Leikkonan segist hafa greinst með Graves-sjúkdóm aðeins 23 ára gömul og að á síðustu árum hafi hún einnig fengið greiningar á meðal annars bandvefssjúkdómi, mastfrumuvirkjunarheilkenni (MCAS) og Sjögren-heilkenni, sem getur meðal annars valdið augn- og munnþurrki, þreytu og liðverkjum.
Í grein Bialik kemur fram að hún hafi fengið þau skilaboð frá læknum að GLP-1 lyf gætu mögulega dregið úr bólgu í líkamanum og þannig hjálpað við sjálfsofnæmiseinkenni. Hún ákvað því að prófa lyfið, en segir afleiðingarnar hafa verið mun verri en hún bjóst við.
„Að segja að ég hafi fengið aukaverkanir er vægt til orða tekið,“ skrifar hún.
Stjórnlaus niðurgangur
Hún lýsir meðal annars stjórnlausum niðurgangi, miklum magaóþægindum, uppþembu, verkjum um allan líkamann og hnerrahrinum í hvert skipti sem hún reyndi að borða eða drekka. Ástandið varð svo alvarlegt að hún gat ekki haldið niðri einu sinni vatni eða öðrum drykkjum.
„Fyrstu tvo dagana borðaði ég kannski einn bolla af hrísgrjónum og hálfan banana,“ segir hún.
Það sem kom henni þó mest á óvart var að læknir hennar sagði að slíkar aukaverkanir væru ekki óalgengar. Ógleði, uppköst og niðurgangur eru meðal þeirra aukaverkana sem oftast eru tengdar GLP-1 lyfjum.
Þrátt fyrir að lyfin hafi notið mikilla vinsælda undanfarin ár, bæði til meðferðar við sykursýki og þyngdarstjórnun, benda sérfræðingar á að enn sé verið að rannsaka langtímaáhrif þeirra. Þar á meðal eru hugsanlegt tap á vöðvamassa, minnkuð beinþéttni og önnur áhrif sem kunna að koma í ljós við langvarandi notkun.
Bialik segir í grein sinni að markmið hennar hafi ekki verið að léttast þegar hún ákvað að taka lyfið. Reynslan hafi hins vegar vakið upp erfiðar hugsanir um líkamsímynd og þyngd sem hún hafi borið með sér frá því hún var barnastjarna í Hollywood.
Í miðjum veikindunum vegna lyfsins hafi ein hugsun sótt á hana aftur og aftur.
„Að minnsta kosti gætirðu misst nokkur kíló,“ skrifar hún og bætir við að jafnvel þegar hún var of veik til að standa upprétt eða drekka vatn hafi hún enn verið föst í þeirri hugsun.