Warner Bros hafa nú birt stiklu fyrir svörtu grínmyndina Digger sem fjallar um valdamikinn olíubarón sem ætlar að sanna að hann sé bjargvættur mannkynsins áður en umhverfishamfarir, sem hann ber ábyrgð á, tortíma heiminum. Leikstjóri myndarinnar er Alejandro G. Iñárritu og með aðalhlutverkið fer leikarinn Tom Cruise.
Leikarinn frægi sagður óþekkjanlegur í nýju hlutverki