Leigubílstjóri í vandræðum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast á síðasta sólarhring og sinnti fjölbreyttum verkefnum, þar á meðal handtökum vegna ölvunaraksturs, vopnalagabrots og eignaspjalla.
Aðili var handtekinn grunaður um eignaspjöll. Þá var annar einstaklingur handtekinn vegna brota á vopnalögum.
Tveir ökumenn voru stöðvaðir og handteknir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis. Annar þeirra er jafnframt grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna.
Lögregla hafði einnig afskipti af ökumanni sem ók yfir leyfilegum hámarkshraða og var hann sektaður á vettvangi fyrir brotið.
Nokkrar tilkynningar bárust um samkvæmis- og tónlistarhávaða víðs vegar um umdæmið.
Þá var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna leigubílstjóra sem lenti í vandræðum með farþega.
Auk þess bárust tilkynningar um skemmdir á eignum og um bifreið sem ekið var með ofsaakstri.