Volodimír Selenskí Úkraínuforseti hefur kallað eftir fundi með Vladimír Pútín, forseta Rússlands, í nýrri tilraun til að binda enda á stríðið.
BBC greinir frá. Í opnu bréfi til Rússlandsforseta sagði Selenskí að það væri „rangt að bíða einfaldlega“ þar til stríðið í Evrópu yrði aftur í brennidepli hjá Bandaríkjunum og bætti við að friður gæti aðeins komist á „með beinum samskiptum milli“ Úkraínu og Rússlands.
Kallar eftir algjöru vopnahléi
Hann kallaði einnig eftir algjöru vopnahléi á meðan á fyrirhuguðum samningaviðræðum stæði – nokkuð sem Pútín hafði útilokað fyrr á fimmtudag.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að honum þætti „frábært“ ef leiðtogarnir tveir myndu hittast.
Kremlverjar staðfestu að þeir hefðu fengið bréfið og að Pútín yrði upplýstur um innihald þess.
Aldurinn farin að segja til sín hjá Pútín
Tónninn í bréfinu var ögrandi og vakti athygli á nýlegum árásum Úkraínu á rússneskt landsvæði.
Selenskí sagði að „eftir 26 ár við völd sé aldurinn farinn að segja til sín“ hjá Pútín.
„Úkraína leggur til að þessu stríði ljúki með beinum samskiptum milli okkar – og ykkar. Ég legg til fund," skrifar Selenskí.
Kremlverjar segja að Selenskí sé velkomið að hitta Pútín en þegar Pútín ræddi við erlenda blaðamenn í Sankti Pétursborg, án þess að hafa greinilega séð innihald bréfsins, sagðist hann „vissulega reiðubúinn og fús til að ná samkomulagi við Úkraínu“ en sagði að gera þyrfti málamiðlanir.
Pútín gaf í skyn að þar sem Trump væri upptekinn af Íran gæti ESB talað Zelensky til að gefa eftir landsvæði.
Útiloka að gefa eftir landsvæði
Langvarandi afstaða Pútíns hefur verið sú að Úkraína ætti að draga sig til baka frá fjórum héruðum sem Rússar hafa að mestu hernumið – Donetsk, Luhansk, Kherson og Zaporizhzhia – og gefa upp tilraunir sínar til að ganga í NATO.
Úkraína hefur útilokað að láta af hendi landsvæði og segir að það myndi hvetja Rússa til að ráðast inn aftur, eins og þeir gerðu árið 2022 þegar þeir hófu allsherjarstríð sitt átta árum eftir að hafa innlimað Krímskaga ólöglega.
Vopnahlésviðræður hafa staðið í stað undanfarna mánuði og fyrri friðarviðræður í Genf, Abu Dhabi og Istanbúl hafa mistekist.
Í bréfinu segir Selenskí enn fremur:
„Það er ekki eins og við í Úkraínu höfum áhyggjur af örlögum rússneskra hermanna eftir allt sem stríð ykkar hefur leitt yfir landið okkar. En ég hef áhyggjur af Úkraínumönnum. Við erum að missa fólkið okkar og hvert mannfall er okkur sársaukafullt.“