Tveimur konum frá Sviss og Austurríki sem voru í haldi mannræningja í eitt og níu mánuði í Níger hefur verið sleppt. Fjölmiðlar í Líbíu segja að konurnar séu komnar til Benghazi í Líbíu.
Eva Gretzmacher er 76 ára og Claudia Abbt er 69 ára. Þær þökkuðu herforingjanum Khalifa Haftar og syni hans Saddam fyrir að hafa leyst sig úr haldi.
Nokkur óöld hefur ríkt í Líbíu allt frá því að Muammar Gaddafi var steypt af stóli árið 2011. Sameinuðu þjóðirnar viðurkenna stjórnvöld í Trípólí sem leidd eru af forsætisráðherranum Abdulhamid Dbeibah.
Líbíski stríðsherrann Khalifa Haftar hefur verið áhrifamikill í Líbíu undanfarin ár og ráðið að mestu austur- og suðurhluta landsins. Hann ræður yfir öflugum her og flugvélum.