Í lesnum tölum var sagt að heildarfjöldi atkvæða væri 71.996 þegar atkvæði voru í raun 70.996 talsins. Í lesnum tölum var því sagt að M-listi Miðflokksins hefði fengið 8.912 atkvæði á meðan rétt atkvæði listans voru 7.912.
Í tilkynningu frá kjörstjórn Reykjavíkur kemur fram að talningaskjalið hafi þannig tilgreint fleiri atkvæði en greidd höfðu verið en þar sem atkvæðin voru aldrei til, hafi engin tilfærsla orðið yfir á önnur framboð í kjölfar leiðréttingar. Um einfalda talnaleiðréttingu hafi verið að ræða auk þess sem misræmið breytti engu um fjölda fulltrúa hvers lista eða úthlutun sæta í borgarstjórn.
Endanleg niðurstaða borgarstjórnarkosninga sem fram fóru 16. maí 2026 er eftirfarandi:
Lokatölur:
- A-listi Vinstrisins 6.649
- B-listi Framsóknarflokksins 4.805
- C-listi Viðreisnar 7.436
- D-listi Sjálfstæðisflokksins 22.930
- F-listi Flokks fólksins 2.319
- G-listi Góða dagsins 361
- J-listi Sósíalistaflokks Íslands 2.858
- M-listi Miðflokksins 7.912
- P-listi Pírata 1.348
- R-listi Okkar borgar 306
- S-listi Samfylkingarinnar 12.737
- Auðir 1.107
- Ógildir 228
- Samtals 70.996
- Á kjörskrá 108.518
- Heildarkjörsókn 65,40%