Landlæknir hefur fellt niður starfsleyfi sex lækna og takmarkað leyfi eins eftir að í ljós kom að þeir hefðu misst starfsleyfi sitt erlendis. Heimildin sagði fyrst frá.
Landlæknir tók ákvörðun sína eftir að blaðamaður Heimildarinnar sendi embættinu lista yfir alls þrettán lækna sem höfðu misst starfsleyfi sitt erlendis en voru enn með starfsleyfi hér á landi. Mögulegt er talið að tilfellin geti verið að minnsta kosti jafnmörg til viðbótar.
Embættið taldi nauðsynlegt að aðhafast í sjö málum af 13.
Í umfjöllun Heimildarinnar kemur fram að fjölmiðillinn tók þátt í alþjóðlegri rannsókn sem leidd var af OCCRP, The Times í Bretlandi og VG í Noregi. Markmið rannsóknarinnar var að athuga fjölda tilfella þar sem læknar héldu starfsleyfum sínum í einu landi eftir að hafa misst það í öðru.
Starfsleyfi læknanna voru felld niður á grundvelli tveggja ákvæða í lögum um landlækni og lýðheilsu. Sömu ákvæði giltu um ákvörðun landlæknis um að takmarka leyfi eins læknanna.
Landlæknir segir að samkvæmt sínum gögnum hafi enginn læknanna sjö verið við störf á Íslandi þegar spurningar Heimildarinnar bárust.
Landlæknir herðir eftirlit
Heimildin fullyrðir að í fyrri rannsókn sinni, fyrir ári síðan, hafi verið komist að því að minnst tveir læknar hafi verið við störf hér á landi eftir að hafa áður misst starfsleyfi sitt erlendis. Einn íslenskur læknir hefði misst starfsleyfi sitt í Bandaríkjunum eftir að hafa ávísað óhóflegu magni ávanabindandi verkjalyfja á sjúkling án þess að skrá fullnægjandi upplýsingar um hann.
Í svörum sínum til Heimildarinnar segir landlæknir að tilkynningar um sviptingar og takmarkanir á starfsleyfum heilbrigðisstarfsmanna innan EES berist í gegnum upplýsingakerfi ESB fyrir innri markaðinn, svokallað IMI-kerfi. Gífurlegur fjöldi slíkra tilkynninga berist öllum EES-ríkjum og eftirlitsstofnunum geti reynst erfitt að fylgjast með þeim og skrá með viðeigandi hætti.
Landlæknir segir að embættið hafi þó sjálft hert eigið eftirlit. „Mál sem þessi eru því komin í mun betri farveg frá því sem áður var þó svo enn megi bæta samstarf og gagnaskil milli ríkja,“ segir í svari embættisins til Heimildarinnar.