Flugvirkjafélag Íslands bauðst til að fresta boðuðum verkfallsaðgerðum um sjö sólarhringa, í viðleitni til að búa til svigrúm í kjaradeilu flugvirkja og Icelandair. Icelandair hafnaði þeirri tillögu í morgun. Þetta segir Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands.
Innanhússtillaga lögð fram um helgina
Óskar segir að dregið hafi til tíðinda í viðræðum á fundi samninganefndanna um helgina. Þreifingar hafi átt sér stað með milligöngu Ástráðs Haraldssonar, ríkissáttasemjara, sem urðu til þess að ríkissáttasemjari lagði fram drög að innanhússtillögu sem deiluaðilar áttu að vinna að.
Óskar segir að Flugvirkjafélag Íslands hafi verið reiðubúið að vinna áfram með þá tillögu.
„Í viðleitni okkar til að skapa samningsaðilum svigrúm buðumst við jafnframt til að fresta boðuðum aðgerðum um sjö sólarhringa þar sem slíkt er háð samþykki viðsemjenda,“ segir Óskar.
Tilgangurinn hafi verið að gefa samninganefndum tíma til að vinna tillöguna áfram og kanna hvort hún gæti leitt til sátta. Í morgun hafi Icelandair hafnað boðinu.
„Það eru fyrst og fremst vonbrigði, en samhliða vekur það upp spurningar um raunverulega stöðu samningsviðræðnanna,“ segir Óskar.
„Er verið að bíða eftir ríkisvaldinu? Að það bjargi ástandinu eins og oft áður? Það er þegar farið að berast fréttir af slíkum hugmyndum úr fjölmiðlum.“