Daði segir framúrkeyrslu ríkisins hafa minnkað
Guðrún Hafsteinsdóttir gagnrýndi ríkisstjórnina fyrir að hafa brugðist of seint við hallarekstri ríkissjóðs. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hafnaði gagnrýninni og sagði framkvæmd fjárlaga hafa batnað á kjörtímabilinu.
Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segir framúrkeyrslu í ríkisrekstri hafa minnkað í tíð núverandi ríkisstjórnar og hafnar gagnrýni Guðrúnar Hafsteinsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um að ríkisstjórnin hafi látið hjá líða að beita nægilegu aðhaldi í ríkisfjármálum.
Guðrún beindi óundirbúinni fyrirspurn til Daða á Alþingi í dag og gagnrýndi ríkisstjórnina fyrir að vísa ítrekað til útgjalda fyrri ríkisstjórnar þegar hallarekstur ríkissjóðs væri ræddur. Hún sagði núverandi ríkisstjórn sjálfa hafa aukið hallann og spurði hvers vegna ekki hefði verið gripið fyrr til aðhalds.
„Hvers vegna var ekki strax hafist handa við aðhald í ríkisfjármálunum þannig að verðbólgan gæti haldið áfram að þokast nær markmiði og vextir haldið áfram að lækka?“ spurði Guðrún.
Hún sagði upphaflega hafa verið stefnt að mun minni halla á þessu ári en nú blasir við. „Hvers vegna lætur ríkisstjórnin hjá líða í tvö ár að skila sínu en klappar sér svo á …