Sigurður H. Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, segir að inniliggjandi sjúklingar á sjúkrahúsinu Vogi séu talsvert færri en þeir ættu að vera miðað við forsendur samningsins milli SÁÁ og Sjúkratrygginga.
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er alla jafna pláss fyrir 45 sjúklinga en þessa stundina eru aðeins 25 innritaðir.
Erfitt að una við færri innlagnir inn á Vog
Samningur SÍ og SÁÁ getur gert ráð fyrir að á sumum tímabilum sé minni eða meiri starfsemi. Vegna þess í hve stuttan tíma þetta ástand hefur verið er ekki augljóst að það sé farið að raska því ákvæði samningsins.
„Hins vegar er ljóst að það er mjög erfitt að búa við það að fjöldi inniliggjenda á Vogi verði mjög lengi til viðbótar langt umfram viðmið samningsins,“ segir hann.
Hvaða tímarammi væri þá þar til viðmiðunar?
„Þetta þarf að lagast á næstu einni til tveimur vikum að okkar mati.“
Mikið hefur gengið á innan SÁÁ, sem rekur sjúkrahúsið Vog, síðustu daga og vikur.
Forstjóri SÁÁ sagði upp störfum vegna ágreinings við framkvæmdastjórn og tveir stjórnendur fylgdu hennar fordæmi.
Tugir starfsmanna lýstu í framhaldinu yfir vantrausti á formann og framkvæmdastjórn en aðalstjórn lýsti stuttu síðar yfir stuðningi við framkvæmdastjórnina.
Samhliða þessum vendingum hafa hátt settir starfsmenn farið í leyfi á sjúkrahúsinu Vogi: fagstjóri og aðstoðarfagstjóri sálfélagslegrar meðferðar, fagstjóri lækninga og fráfarandi framkvæmdastjóri lækninga. Þá hefur einn læknir til viðbótar farið í leyfi.
Sjúkratryggingar fylgjast vel með ákvæði samningsins um hæfni lykilstjórnenda. „Það er augljóst að það er atriði samningsins sem við fylgjumst með og þurfum að fylgja eftir,“ segir Sigurður.
Einn áfengis- og vímuefnaráðgjafi með réttindi starfandi
Samkvæmt heimildum fréttastofu er aðeins einn áfengis- og vímuefnaráðgjafi með réttindi að störfum í sálfélagslegu meðferðinni.
Alla jafna eru þeir að minnsta kosti fjórir. Auk ráðgjafa með réttindi vinna nemar í starfsþjálfun við ráðgjöf. Þeir eru þessa stundina þrír.
„Það er augljóst að þegar við gerum svona samning þá gerum við það í trausti þess að sú hæfni sem er til staðar innan vébanda SÁÁ verði áfram til staðar,“ segir Sigurður.
Hann segir að ef fagmönnun er orðin verulega skert miðað við það sem var þegar samningurinn var gerður þurfi að skoða það.
Hann segist hafa trú á því að það verði tekið á stöðunni innan SÁÁ. „Það er fyrst og fremst það sem við erum að vinna að í augnablikinu.“
Sjúkratryggingar hafa fundað með SÁÁ og fylgjast náið með þróun mála. „Við höfum lagt áherslu á það að þurfa að styrkja umgjörð og stjórnarhætti starfseminnar og höfum átt samtal hvað það varðar,“ segir Sigurður.