Markaðsöflin eru að keyra skipti yfir í hreina, endurnýjanlega orkugjafa með þvílíkum krafti að ekki verður aftur snúið. Þetta segir Simon Stiell, loftslagsstjóri Sameinuðu þjóðanna, en ný skýrsla Alþjóðastofnunar um endurnýjanlega orku (IRENA) var birt í dag.
Samkvæmt henni bættust 693 gígavött af nýrri endurnýjanlegri orku við á heimsvísu árið 2025. Aldrei hefur annað eins magn orkugetu bæst við á einu ári en þetta samsvarar meira en helmingi allrar raforkuframleiðslugetu Bandaríkjanna.
Til að ná markmiði um að þrefalda framleiðslugetu endurnýjanlegrar orku fyrir árið 2030, sem ríki heims komu sér saman um á loftslagsráðstefnunni COP28 árið 2023, þarf þó enn að bæta í.
Heildarframleiðslugetan er nú rúm 5 teravött, en ef þróunin heldur áfram af sama krafti og á síðasta ári verður hún komin upp í 10,6 teravött árið 2030, sem er rétt undir 11,2 teravatta takmarkinu frá 2023.
Markaðsöflin festa sig í sessi
Í skýrslunni kemur jafnframt fram að endurnýjanleg orka var áfram hagkvæmasti kosturinn við uppbyggingu nýrrar raforkuframleiðslu á flestum mörkuðum árið 2025.
„Kraftur markaðsaflanna er að festa sig í sessi,“ sagði Stiell. „Umskiptin yfir í hreina orku eru nú óumflýjanleg.“
Heimurinn á engu að síður langt í land með að ná markmiði um orkunýtni fyrir árið 2030
Í skýrslunni eru meðal annars lagðar til fjárfestingar í dreifikerfum raforku og geymslu á rafmagni framleiddu með sólar- og vindorku til að tryggja hagkvæma raforku allan sólarhringinn.
Orkuþörf eyst stöðugt vegna gervigreindar
David Waskow hjá hugveitunni World Resources Institute segir þó að jákvæðu fréttirnar verði að skoða í ljósi þess að endurnýjanleg orka hafi enn ekki komið nægilega mikið í stað jarðefnaeldsneytis, á sama tíma og orkuþörf heimsins eykst.
Meðal þess sem kalli á meiri orku sé kæling híbýla í hlýnandi heimi sem og gervigreind og gagnaver.
„Við þurfum ekki aðeins að byggja upp endurnýjanlega orku og rafvæða hraðar, heldur líka að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis,“ sagði hann.
Samkvæmt skýrslu bresku orkusamtakanna Energy Institute, sem kom út í júní, kemur fram að jarðefnaeldsneyti hafi enn staðið undir 86 prósentum af orkuþörf heimsins árið 2025 og að notkun þess hafi haldið áfram að aukast þegar horft er til magns.
Um þriðjungur raforfkuframleiðslu í heiminum kemur frá kolaverum.
Gestgjafar COP31 leggja áherslu á gervigreind
Orkuþörf gervigreindar er líka gestgjöfum næstu loftslagsráðstefnu, Tyrkjum, ofarlega í huga. Murat Kurum loftslagsmálaráðherra landsins sagði í dag að eitt helsta áherslumál rástefnunnar í Antalyu í nóvember væri að stemma stigum við kolefnisspori gervigreindarinnar.