Fulltrúar Bretlands og Evrópusambandsins undirrituðu í dag samning um að afnema landamæraeftirlit milli Spánar og Gíbraltar. Þetta gerir það að verkum að fólk getur ferðast á milli að vild og þúsundir manna sem sækja vinnu yfir landamærin þurfa ekki að fara í gegnum tafsamt landamæraeftirlit.
Gíbraltar lýtur breskri stjórn en hefur þó sjálfstjórn. Landamærin hafa verið til staðar síðan 1908. Árið 1969 samþykkti Gíbraltar í þjóðaratkvæðagreiðslu að vera áfram hluti af Bretlandi, sem varð til þess að Franco hershöfðingi, þáverandi einræðisherra Spánar, lokaði landamærunum að Gíbraltar. Þau voru opnuð aftur 13 árum síðar eftir dauða Francos. Síðan þá hefur verið landamæraeftirlit þar og hafa iðulega myndast langar raðir á háannatíma þegar fólk fer til og frá vinnu.
Mikil óvissa var um stöðu Gíbraltar eftir að Bretar samþykktu að ganga úr Evrópusambandinu, nokkuð sem íbúar landsins voru algjörlega á móti. Samningaviðræður hafa hins vegar staðið yfir árum saman og leiddu á endanum til samkomulagsins sem var undirritað í dag.
Um helmingur vinnuaflsins á Gíbraltar, eða um 15.500 manns, býr á Spáni. Owen Smith, formaður samtaka lítilla fyrirtækja á Gíbraltar, segir opnunina skapa tækifæri til að ráða fleiri starfsmenn sem búa á Spáni. Þá verður Gíbraltar hluti af evrópska tollabandalaginu og Schengen-samstarfinu um frjálsa för fólks. Ferðamenn utan þess þurfa áfram að sýna vegabréf.