Eitt af minnstu sjálfstæðu ríkjum heims, Naúrú, hefur breytt um nafn. Þetta var tilkynnt á 81. aðalfundi Sameinuðu þjóðanna í New York af forseta landsins David Adeang.Breska blaðið The Independent greinir frá þessu.„Ég er kominn langt að,“ sagði Adeang þegar hann tilkynnti nafnabreytinguna. En framvegis mun Naúrú heita Naóeró, sem er upphaflega nafn landsins. „Það koma stundir í lífi þjóðar þegar fólk hennar er hvatt til að minnast þess hver það hefur alltaf verið. Þetta er einmitt slík stund fyrir okkur,“ sagði hann.
Land breytir um nafn