Gjörgæslulæknirinn Mario Schiter segir að koma hefði mátt í veg fyrir andlát Diegos Maradona með einfaldri þvagræsandi meðferð.
Hann sagði þetta aðspurður um hvað hefði getað bjargað lífi Maradona við réttarhöld yfir sjö heilbrigðisstarfsmönnum sem sakaðir eru um vanrækslu sem leiddi til dauða hans árið 2020.
Læknirinn bætti við að líklega hefði heilsa Maradona batnað á tveimur sólarhringum. Á hverjum degi fái sjúklingar með hjartabilun slíka meðferð á gjörgæsludeildum og séu útskrifaðir tólf klukkustundum síðar. Maradona var sextugur þegar hann lést.
Vitnisburður Schiters, sem tók þátt í krufningu Maradona, kemur í kjölfar þess að nokkrir sérfræðingar hafa sagt mikinn umframvökva hafa verið í nokkrum líffærum knattspyrnumannsins þegar hann dó.
Krufningalæknirinn Carlos Casinelli sagði við vitnaleiðslur að vökvasöfnunin hefði alls ekki átt að fara fram hjá heilbrigðisstarfsfólkinu sem annaðist hann á heimili hans.
Schiter annaðist Maradona á fyrstu árum aldarinnar og andæfði heimahjúkrun eftir að hann gekkst undir skurðaðgerð vegna blóðtappa í heila skömmu fyrir andlátið. Verði sjömenningarnir fundnir sekir getur allt að aldarfjórðungs fangelsisvist beðið þeirra.