Úrkomusvæðið færist ögn austar og styttir því upp á norðvestanverðu landinu með deginum, að því er veðurfræðingur Veðurstofunnar segir í hugleiðingum sínum í morgunsárið.
Víða er rigning í dag, en snjókoma eða slydda til fjalla á norðanverðu landinu, með stöku skúrum eða éljum norðvestantil. Hiti er 3 til 8 stig að deginum.
Á morgun má búast við norðlægri átt, 3-10 m/s og víða bjart með köflum, en stöku skúrir eða él suðaustantil. Kólnar heldur í veðri.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag:
Breytileg átt 3-8 m/s og skýjað með köflum, en dálítil væta suðaustanlands. Hiti 0 til 6 stig að deginum, mildast suðaustantil.
Á þriðjudag:
Vestlæg átt 8-13 og bjart með köflum, en snýst í norðan átt með stöku smáéljum norðantil síðdegis. Hiti 0 til 7 stig, en víða frost inn til landsins.
Á miðvikudag:
Norðan 5-10 og bjartviðri, en 8-15 og dálítil snjókoma norðan- og norðaustanlands. Frost 0 til 6 stig.
Á fimmtudag:
Suðvestlæg eða breytileg átt og snjókoma eða él, en skýjað með köflum suðaustan- og austanlands. Hiti breytist lítið.
Á föstudag:
Líkur á norðlægri átt og snjókomu eða éljum, en birtir til sunnantil er líður á daginn. Kólnar heldur.
Á laugardag:
Útlit fyrir norðvestlæga átt og snjókomu eða él, en bjart með köflum sunnan heiða.