Það er komið að kaflaskilum hjá Vilbergi Skúlasyni, þekktur er sem Villi pulsa í Reykjanesbæ, en hann er að selja Pulsuvagninn sinn eftir 46 ár. Hann kvaddi með því að bjóða upp á pylsur í sól og blíðu í bænum í dag.
„Ég keypti gamlan pulsuskúr af strákum sem voru hérna. Og utan á honum stóð pulsuvagninn með U-i sem ég hef bara leyft að standa, síðan þá hefur þetta verið að núa manni stundum að þetta sé ekki svona, en það biðja allir um pulsu,“ segir Villi.
„Hreinlæti og gott hráefni, alltaf opið og að allt sé til“
Reyndar bað fréttamaður Villa um pylsu en ekki pulsu, enda að norðan. En það sló Villa ekki út af laginu. Hann segir sama fólkið hafa komið allan þennan tíma. Lykillinn að því sé hreinlæti og gott hráefni. Að hafa alltaf opið og að allt sé til.
Gunnlaugur Kárason, sem verður nýr formaður bæjarráðs í bænum, er einn fastagesta Pulsuvagnsins. „Eins og þú sérð þá eru bæjarbúar að streyma hér að og hafa gert alveg frá því klukkan tvö. Þannig að þeir munu sakna hans. Sumir eldri og sumir glænýir að byrja að njóta hjá honum,“ segir hann.
Reksturinn skilinn eftir í bestu mögulegu höndum
Samstarfskona Villa, Inga, tekur við rekstrinum, sem hann segir í mjög góðum höndum. „Já, mjög sem betur fer. Þeim bestu sem ég gat. Hún er búin að vera samstarfskona mín í 25 ár. Hún og sonur hennar taka við þessu og þá fær þetta að halda áfram svona eins og þetta er,“ segir hann.
Gamall draumur rætist þegar þessum kafla er lokið
Eru blendnar tilfinningar að segja skilið við þennan kafla?
„Æji, ég veit það ekki. Þetta er bara gott, núna tekur nýr kafli við. Nú ætla ég að verða bóndi. Það er gamall draumur, ég sinni því bara núna. Hrossarækt og fleira,“ segir hann.
Fólk á öllum aldri mætti og kvaddi Villa í blíðunni í dag. „Þetta er ótrulegt. Hefur farið inn að hjartanu á manni alveg. Mér fannst ég eiga þetta inni hjá honum þarna uppi, að fá þetta fína verður,“ segir hann.
Það hlýi honum að sjá allt þetta fólk. „Margir hafa komið og maður fær knús, myndatökur og þakklæti. Maður finnst manni eiga svolítið í fólkinu, sumum meira en öðrum,“ segir Vilberg Skúlason.