Kristrún segir sjálfstæðið ekki sjálfgefið í dag
Forsætisráðherra viðurkennir áhyggjur af Bandaríkjunum.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir það „risastórt vandamál“ hvernig talað er um Grænland og að Íslendingar hafi af því miklar áhyggjur. Það sé góður tími til að ganga í Evrópusambandið.
Kristrún er í viðtali í stjórnmálahlaðvarpinu The Rest is Politics undir yfirskriftinni: Er óreiða Trumps að ýta Íslandi í Evrópusambandið?
„Það er ekki gefið í dag að við höfum rödd og að fólk hlusti á okkur,“ segir Kristrún. „Það er ekki sjálfgefið að vera sjálfstætt land, jafnvel í heiminum í dag.“
Í viðtali við Heimildina í janúar síðastliðnum sagði Kristrún hins vegar: „Við getum treyst á Bandaríkin.“
Athygli vakti um helgina að þingmaður Miðflokksins, Ingibjörg Davíðsdóttir, sagði í myndbandi sem dreift var af flokknum að það væri „mjög miður“ að íslensk stjórnvöld hefðu ekki fundað með Bandaríkjunum um Evrópusambandsaðildina og kannað hvaða áhrif hún gæti haft á varnarsamning við Bandaríkin, sem væri grunnforsenda þess að Ísland yrði varið.