Kristrún með stjórnarslit á teikniborðinu

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Glöggur fjölmiðlarýnir taldi 22 frammíköll Kristrúnar forsætisráðherra í pallborðsumræðum með formanni Sjálfstæðisflokksins og tveim öðrum. Frammíköll Kristrúnar voru fleiri en hinna þriggja til samans. Forsætisráðherra er órótt, veit að skapadómur ríkisstjórnarinnar er á laugardag.
Í viðtengdri frétt er tíunduð falleinkunn ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. Sjö af hverjum tíu segja Kristrúnu og félaga standa sig illa í málum vaxta og verðbólgu. Persónulegt loforð forsætisráðherra til kjósenda var að ná niður verðbólgu til að lækka vexti. Með sleggju.
Á laugardag verður ekki kosið um verðbólgu og vexti. Þjóðaratkvæði í þágu Viðreisnar spyr hvort ríkisstjórnin fái heimild að endurnýja ESB-umsókn.
Já í þjóðaratkvæðagreiðslunni felur í sér þriggja til fimm ára aðlögunarferli inn í Evrópusambandið. Tæpur helmingur þjóðarinnar verður hatrammur á móti þeirri vegferð. Meirihlutinn á alþingi er andvígur ESB-aðild. Borðið er dekkað fyrir stjórnmálaóreiðu næstu árin.
Á meðan þjarkað væri við Evrópusambandið um undanþágur og pólitísk illindi tröllriðu húsum hér heima yrðu efnahagsmál afgangsstærð. Pólitísk stefnumótun og stjórnsýsla tækju mið af Brussel en ekki íslenskum veruleika. Í alþjóðamálum sæti Ísland í biðsal.
Kristrún heldur Samfylkingunni í hæstu hæðum í skoðanakönnunum. Er almenningur áttar sig á að sérmál Viðreisnar, sem fékk 15 prósent fylgi í þingkosningum, er rekið áfram á kostnað hagstjórnar og stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu er hætt við að annað hljóð komi í strokkinn. Gæfuleysið er heimagert.
Í tilfelli já á laugardag stendur Kristrún frammi fyrir tveim kostum. Í fyrsta lagi leyfa Þorgerði Katrínu utanríkisráðherra að stýra landinu út kjörtímabilið í aðlögunarferli ESB og sætta sig við óreiðu í efnahagsmálum og utanríkispólitíska óvissu. Í öðru lagi að rjúfa þing og freista þess í þingkosningum að halda Samfylkingunni stjórntækri. Forsætisráðherra hefur eftir kjördag ekki nema fáeina daga að taka ákvörðun. Farþegi eða foringi. Þar liggur efinn.
Gráglettni örlaganna er að já á laugardag færir ríkisstjórnina nær skapadægri en nei. Þjóðaratkvæði í þágu Viðreisnar átti að leysa innanhússvanda stjórnarráðsins en býr til annan vanda stærri og torleystari. ESB-leiðangur er ósamrýmanlegur stjórnmálum er miðast við að forræði íslenskra mála sé í höndum Íslendinga.
Ekki kæmi á óvart að margur stjórnarsinninn segi nei eftir tvo daga þótt annað sé látið í veðri vaka.