Í gær var birt viðtal við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í hinu þekkta og vinsæla hlaðvarpi The Rest is Politics. Hlaðvarpinu stýra eins og kunnugt er tveir Bretar þeir Alastair Campell, fyrrum spunameistari Tony Blair fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, og Rory Stewart fyrrum þingmaður Íhaldsflokksins þar í landi. Tilefni viðtalsins var komandi þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið en fleiri mál voru einnig til umræðu.
Kristrún með kenningu um hvers vegna margir atvinnurekendur eru mótfallnir inngöngu