Ákæruvaldið fer fram á að Andri Már Mortensen Birgisson og Ingunn Rut Sigurðardóttir fái átta til tíu ára fangelsisdóma í Reykholtsmálinu svokallaða. Þetta kom fram í málflutningi ákæruvaldsins fyrir Héraðsdómi Suðurlands í dag.
Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, eru ákærð fyrir að halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og beita hann harkalegu ofbeldi í því skyni að hafa af honum fé í apríl 2024.
Farið er fram á sex til átta ára fangelsisdóm yfir einum sakborningi í málinu, fjögurra til sex ára fangelsisdóm yfir tveimur sakborningum og þriggja til fjögurra ára dóm yfir einum.
Þess er krafist að sakborningarnir greiði um 250 til 300 þúsund krónur í málskostnað.
Skýrslutökum lauk í aðalmeðferð málsins í morgun þegar tveir maltneskir læknar og íslenskur sálfræðingur gáfu skýrslu fyrir dómi. Fyrir hádegi hófst svo málflutningur ákæruvaldsins.
Þar fór Fanney Björk Frostadóttir aðstoðarsaksóknari yfir hvern lið ákærunnar. Hún rakti vitnisburð úr skýrslutökum og gögn málsins sem að mati ákæruvaldsins sýna fram á sekt sakborninganna.
Þar vógu ekki síst þungt gögn úr síma Andra Más. Hún fór að lokum yfir dóma úr eldri frelsissviptingarmálum sem líta þurfi til við ákvörðun refsingar, áður en hún lýsti kröfum ákæruvaldsins.
Ljóst er að málflutningi lýkur ekki í dag. Búist er við að honum ljúki á morgun. Talið er að dómur verði kveðinn upp eftir fjórar til átta vikur.