Mohamad Thor Jóhannesson, sem áður hét Mohamad Kourani hefur lokið afplánun og var fluttur af landi brott á þriðjudag. Farið var með hann til heimalands síns, Sýrlands.
Mohamad sætir endurkomubanni á Schengen-svæðið næstu 30 árin. Hann var leystur úr haldi þegar hann hafði afplánað þriðjung refsingar sinnar. Það er í samræmi við tímabundin lög sem kveða á um að erlendir sakamenn sem hafa brotið af sér hér geta fengið lausn fyrr en áður gegn því að sæta endurkomubanni á Schengen-svæðið.
Mohamad var dæmdur í átta ára fangelsi 2024 fyrir tilraun til manndráps og fleiri brot.
Ragna Bjarnadóttir, forstjóri Fangelsismálastofnunar, staðfesti í samtali við fréttastofu að Mohamad hefði verið fluttur úr landi á þriðjudag og að hann væri kominn til Sýrlands.
Afbrot Mohamads vöktu mikla athygli og umtal á sínum tíma. Hann var dæmdur fyrir fólskulega árás í versluninni OK Market við Hlíðarfót í Reykjavík. Þar stakk hann einn mann í andlitið og veittist að öðrum manni sem reyndi að koma þeim fyrri til aðstoðar.
Hann hafði ítrekað brotið af sér frá komunni til Íslands 2017 og hafði í hótunum við lögreglumenn og aðra. Einkum vakti það umræðu þegar kom í ljós að hann hafði hótað Helga Magnúsi Gunnarssyni, þáverandi ríkissaksóknara, of fjölskyldu hans lífláti.
Fréttin hefur verið uppfærð.