Tónlistar-, fjölskyldu- og grillhátíðin Kótelettan hófst með glæsibrag á Selfossi í gærkvöldi en þetta er í 16. sinn sem hún er haldin.
Að sögn Einars Björnssonar, skipuleggjanda hátíðarinnar, hefur undirbúningur gengið vel. Allt sé tilbúið fyrir tvö stór tónleikakvöld og fjölskyldudag, en vænta má að fjöldi gesta hlaupi á þúsundum.
„Upphitunartónleikarnir voru frábærir og það var mikil stemning í bænum. Veðurguðirnir ætla að vera okkur hliðhollir 16 árið í röð þannig við erum voðalega þakklát og spennt.“
Stór tónleikakvöld
Aron Can, Jón Jónsson, Koppafeiti, Slysh og SVitabandið stigu á svið í gærkvöldi á upphitunartónleikum Kótelettunnar við mikinn fögnuð gesta.
Tónleikahald hefst klukkan 21 á Eimskipssviðinu í kvöld og munu listamenn á borð við Retro Stefson, Herra hnetusmjör, Stuðlabandið, Aron Can og GDRN halda uppi fjörinu fram á rauða nótt, en tónleikahaldi lýkur ekki fyrr en klukkan 4 um morguninn.
Laugardagurinn verður ekki síðri en þá stíga til að mynda FM95BLÖ, Páll Óskar, Birnir, Selma Björns og Papar á svið.






