Enginn flokkur náði meirihluta þingsæta í þingkosningunum á Nýja-Sjálandi í gær. Stærstu flokkarnir, Þjóðarflokkur forsætisráðherrans Christopher Luxon og Verkamannaflokkurinn, flokkur fyrrverandi forsætisráðherra Chris Hipkins, fengu hvor um sig 29% atkvæða.
Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum fær Þjóðarflokkurinn 42 sæti en Verkamannaflokkurinn 36 þingsæti.
Fimm aðrir flokkar buðu fram til þings. Græningjum er spáð 16 sætum, ACT-flokknum 13, flokknum Nýja Sjáland fyrst er spáð 12 þingsætum og Te Pāti Māori er spáð 5 þingsætum. Hinum nýstofnaða Tækifærisflokki er spáð 7 þingsætum.
Leiðtogi flokksins, Qiulae Wong, segist tilbúinn að vinna með bæði Þjóðarflokknum og Verkamannaflokknum.
Úrslit kynnt 27. nóvember
Búið er að telja 99% atkvæða en enn á eftir að telja atkvæði Nýsjálendinga sem kusu erlendis. Kjörstjórn kynnir endanleg úrslit þó ekki fyrr en 27. nóvember. Þá verður einnig tilkynnt um hversu mörg þingsæti verða á næsta kjörtímabili. Sem stendur er útlit fyrir að það verði 11 sætum fleiri á þinginu en á nýafstöðnu kjörtímabili.
Á Nýja-Sjálandi er svokallað hlutfallskosningakerfi (Mixed-member Proportional system – MMP) og kjósendur kjósa bæði um stjórnmálaflokk og fulltrúa síns kjördæmis. Sá frambjóðandi sem fær flest atkvæði í sínu kjördæmi sigrar og verður þingmaður.
Stjórnmálaflokkar þurfa hins vegar að minnsta kosti 5% atkvæða til að tryggja sér sæti á þinginu. Þingsætum er svo úthlutað í sama hlutfalli við þau atkvæði sem flokkarnir fá.
Á nýsjálenska þinginu eru yfirleitt 120 þingsæti. 71 sæti er úthlutað til kjördæma en hin 49 skiptast milli stjórnmálaflokka í hlutfalli við atkvæði þeirra. Nú er hins vegar útlit fyrir að þingsæti verði 131 á næsta kjörtímabili miðað við bráðabirgðaniðurstöður.
Erfitt efnahagsástand og atvinnuleysi
Kosningabaráttan hefur einkennst af áhyggjum vegna hækkandi framfærslukostnaðar og efnahagsástandsins. Margir eiga erfitt með að ná endum saman, verð á nauðsynjavöru helst óvenju hátt og atvinnuleysi hefur ekki mælst jafn hátt í áratug.
Þá hefur stríðsátökum í Mið-Austurlöndum verið kennt um hækkandi eldsneytisverð sem hefur bitnað á efnahagnum.
Breska ríkisútvarpið segir í umfjöllun um kosningarnar að þrátt fyrir að þjóðin framleiði áttfalt það magn sem þarf til að fæða hana, þá segist um fjórðungur fullorðinna sleppa úr máltíð vegna þess að matvöruverð sé svo hátt.
Matvöruverð er með því hæsta sem þekkist í þróuðum ríkjum en tvær stórar verslunarkeðjur eru ráðandi á markaðinum og því er skortur á samkeppni á þessum tvíokunarmarkaði.
Ástandið í heilbrigðiskerfinu er bagalegt en mannekla, langir biðlistar og aukinn kostnaður fyrir sjúklinga hafa verið mikið til umræðu í aðdraganda kosninganna.
Þau sem geta flutt búferlum gera það en á síðasta ári fluttu yfir 66.000 Nýsjálendingar frá landinu, eða um 180 á hverjum degi. Alltaf flytja einhverjir til baka á móti brottfluttum, en svo miklir fólksflutningar hafa óneitanlega áhrif á þjóð sem telur um 5,3 milljónir íbúa.