Ekki má skjóta álftir þar sem tegundin er friðuð. Björgvin Þór Harðarsson, svína- og kornbóndi í Laxárdal í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, vill að gefið verði leyfi til að skjóta ungana því fuglinn fjölgi sér svo ört. Grágæsir eru líka til vandræða á kornökrum en þær má skjóta.
Björgvin er einn af stærstu kornbændum landsins. Hann er meðal annars með nokkra stóra akra í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Alls ræktar Björgvin korn á um 400 hekturum. Það eru ekki gleðitíðindi af kornræktinni þetta haustið hjá honum því álftir og grágæsir éta upp og traðka kornakrana eins og enginn sé morgundagurinn.
„Hún kemur snemma á morgnana, svona í birtingu, og flýgur þá til lendingar fyrir utan akrana og labbar svo að brúninni og byrjar að éta úr kantinum og traðka niður. Þannig í rauninni traðkar hún meira niður en hún étur og bælir þetta allt saman, þannig að það er í rauninni allt ónýtt þar sem hún er búin að fara. Og svo kemur grágæsin í kjölfarið og þær eru þarna saman að japla á þessu og skemma þetta allt saman,” segir Björgvin.
Hann segist vera með miklar varnir til að verjast fuglunum, eins og fuglahræður hér og þar á ökrum og hljóðfælur, en það virki lítið sem ekkert.
20 hektarar, það er svakalegt.
„Já, það er mjög mikið og kostnaðurinn af þessu er alveg hrikalegur. Fallegir akrar eru bara rústir einar eftir þetta,” segir Björgvin.
En hvað er hægt að gera í þessari stöðu?
„Ég sæi fyrir mér að þar sem álftin er að skemma að þar væri möguleiki að fá undanþágu til að verjast henni og verjast henni þannig að álftarungarnir yrðu einungis skotnir,” segir Björgvin.
Þannig að þú vilt að ungarnir verði drepnir en foreldrarnir fái að lifa?
„Já, í raun og veru. Ég vona bara að þeir sem ráða þessum málum að þeir sjái að þetta gengur náttúrulega ekki. Þessi fjölgun á álftinni er algjörlega stjórnlaus,“ segir Björgvin Þór.